Bifröst University
Hvernig styður mannauðsstjórnun við vellíðan og starfsánægju erlends starfsfólks í verslunum á Íslandi út frá reynslu mannauðsstjórnenda?
Abstract
dc:description.abstractÁ undanförnum árum hefur íslenskur vinnumarkaður tekið miklum breytingum þar sem aukinn fólksflutningur og alþjóðavæðing hefur leitt til þess að erlendir starfsmenn gegna sífellt stærri hlutverki í ákveðnum atvinnugreinum eins og í þjónustustörfum, ferðaþjónustu, byggingariðnaði og í heilbrigðiskerfinu. Þessi þróun kallar á skýrari stefnu um mannauðsstjórnun og markvissar aðgerðir til að tryggja vellíðan, inngildingu og starfsánægju fjölbreytts starfsmannahóps. Rannsókn þessi miðar að því að varpa ljósi á hvernig mannauðsstjórnun getur stuðlað að vellíðan og starfsánægju erlends starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði samkvæmt mannauðsstjórum og stjórnendum, og hvaða aðferðir þau telja árangursríkastar við inngildingu og uppbyggingu stuðnings fyrir þennan hóp. Rannsóknin byggir á eigindlegri aðferðafræði þar sem tekin voru sex hálfopin viðtöl við stjórnendur og mannauðsstjóra í verslunum. Þau gögn sem voru söfnuð voru greind með þemagreiningu Braun og Clarke. Niðurstöðurnar sýna að lykilþættir vellíðanar tengjast virku stuðningsumhverfi frá stjórnendum og mannauðssdeild en einnig samskiptum og tækifærum til þróunar í starfi. Þá koma fram að tungumálaerfiðleikar, menningarmunur og skortur á formlegum stuðningskerfum geta skapað áskoranir fyrir erlenda starfsmenn og dregið úr starfsánægju. Rannsóknin undirstrikar mikilvægi mannauðsstjórnunar við að móta inngildandi vinnuumhverfi þar sem fjölbreytileiki er metinn sem styrkur. Niðurstöður geta nýst fyrirtækjum við að þróa stefnu og aðgerðir sem efla jafnræði, vellíðan og starfsánægju á íslenskum vinnumarkaði.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Thelma Tara Tsirenge Jeannotsdóttir 1997-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Lara Wilhemine Hoffmann 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52118