Abstract
dc:description.abstractAndleg líðan lögreglumanna hefur fengið aukna athygli á síðustu árum, bæði hér á landi og erlendis, þar sem rannsóknir sýna að starf lögreglu er oft krefjandi, ófyrirsjáanlegt og tilfinningalega íþyngjandi. Markmið þessarar rannsóknar er að skoða hvernig næstu yfirmenn í útkallsdeildum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu og hjá embætti ríkislögreglustjóra styðja við andlega heilsu lögreglumanna og hvaða leiðir þeir nota í daglegu starfi til að draga úr áhrifum álags og erfiðra verkefna. Rannsóknin er eigindleg og byggir á hálfopnum viðtölum við tíu stjórnendur. Við greiningu gagna komu fram fjögur meginþemu sem lýsir því hvernig stuðningur birtist í samskiptum og vinnumenningu. Niðurstöður sýna að mannleg nálgun stjórnenda, nærvera, traust og opin samskipti mynda grunninn að öflugum stuðningi. Stjórnendur leggja áherslu á að vera til staðar fyrir starfsfólk sitt, hlusta, ræða opinskátt og leiða með góðu fordæmi, sem styrkir sálfræðilegt öryggi og gerir lögreglumönnum kleift að tjá líðan sína án ótta við fordóma eða afleiðingar. Álagsþættir tengjast meðal annars manneklu, miklu verkefnaálagi, vaktavinnu og erfiðum málum sem geta tekið á tilfinningalega. Stjórnendur reyna að draga úr áhrifum álags með því að fylgjast með málafjölda, veita sveigjanleika þegar hægt er og hvetja til hvíldar og endurheimtar. Stuðningur kemur jafnframt fram í formlegum og óformlegum úrræðum, þar á meðal viðrun eftir erfið útköll, aðgengi að sálfræðingum og trúnaðarmönnum, daglegum samtölum og sterkum félagastuðningi innan deilda. Félagsleg samvera, samheldni og hreyfing á vakt reynast einnig mikilvæg til að draga úr streitu og efla vellíðan. Niðurstöður benda til þess að fræðsla og þjálfun um andlega heilsu og mannlega þætti í starfi þurfi að vera regluleg, markviss og aðgengileg fyrir allt starfsfólk. Þrátt fyrir áskoranir, eins og manneklu, sjá stjórnendur tækifæri til að styrkja heilsueflandi vinnumenningu enn frekar og telja slík nálgun vera góð fjárfesting. Stjórnendur telja slíka nálgun einnig geta aukið vellíðan, fagmennsku og seiglu lögreglumanna til lengri tíma. Lykilhugtök: andleg heilsa, lögreglan, stuðningur stjórnenda, heilsueflandi forysta, starfsumhverfi og vinnumenning.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sara Lind Frostadóttir 1998-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Þóra Þorgeirsdóttir 1979-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/52181