Back to search

Bifröst University

Staðreyndir og sannleikur. Vald, véfenging og varnaglar í barnaverndarrétti.

Abstract

dc:description.abstract

Ritgerðin fjallar um kerfislægar villur í íslensku barnaverndarkerfi og lagalega varnagla sem ætlað er að koma í veg fyrir þær. Rannsóknarspurning ritgerðarinnar er: Eru gildandi lagalegir varnaglar, innlendir og alþjóðlegir, fullnægjandi til að koma í veg fyrir og leiðrétta kerfislægar villur í barnavernd sem stafa af stofnanalegri þekkingarframleiðslu? Til að svara henni þarf að greina þrennt: (i) hvernig slíkar villur verða til í gegnum verklag, skráningu og mat, (ii) hvort gildandi málsmeðferðarreglur ná til þeirra í framkvæmd og (iii) hvort eftirlit Mannréttindadómstóls Evrópu nái til þeirra efnislegu bresta sem felast í orðræðu kerfisins. Fræðilegur rammi rannsóknarinnar byggir á fjórum hugmyndum Foucaults: orðræðu og þekkingarfræðilegu valdi, agavaldi og normvæðingu, stjórnunarhyggju og loks parresíu. Þessi hugtök eru notuð til að greina hvernig ósýnilegt vald birtist í daglegum stofnanalegum athöfnum á borð við skráningu, mat og flokkun einstaklinga. Rannsóknin notast við tvær aðferðir: foucaultíska orðræðugreiningu og lagalega greiningu á málsmeðferðarreglum. Greind eru fimm lykilmál úr íslenskri dómaframkvæmd og þau sett í samhengi við fordæmi Mannréttindadómstóls Evrópu og norræna samanburðarlögfræði. Niðurstöður sýna að kerfislægar villur verða til í gegnum þriggja þrepa ferli: stofnanaleg þekkingarframleiðsla umbreytir athugunum starfsmanna í skráðar staðreyndir, normvæðing festir þá þekkingu í sessi og parresía breytir gagnrýni foreldra í sönnun á þeirri niðurstöðu sem verið er að andmæla. Gildandi varnaglar eru nauðsynlegir en ekki fullnægjandi. Þeir ná til formlegra bresta, en ekki til efnislegra þegar skráð þekking kerfisins er uppruni bjögunarinnar. Ritgerðin leggur til sex umbætur á framkvæmd gildandi laga.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Iðunn Elsa Kristinsdóttir 1976-
Advisor dc:description.advisor
  • Kolbrún Garðarsdóttir 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 1

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53778

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Iðunn Elsa Kristinsdóttir 1976-. Staðreyndir og sannleikur. Vald, véfenging og varnaglar í barnaverndarrétti.. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53778