Bifröst University
Einhverfukulnun kvenna á íslenskum vinnumarkaði. „Ég var bara að reyna að vera eins og allir hinir“
Abstract
dc:description.abstractEinhverfukulnun kvenna á íslenskum vinnumarkaði hefur lítið verið rannsökuð, þrátt fyrir að kulnun sé vaxandi umræðuefni í samfélaginu. Margt bendir til þess að einhverfir einstaklingar séu í aukinni hættu á kulnun vegna þeirra krafna sem felast í daglegri aðlögun að vinnuumhverfi sem ekki er hannað með þarfir þeirra í huga. Markmið rannsóknar var að varpa ljósi á hvaða þættir í vinnuumhverfi stuðla að eða vernda gegn einhverfukulnun meðal þessa hóps. Tekin voru hálfstöðluð viðtöl við átta einhverfar konur á Íslandi, allar með seinkaða greiningu, og gögn greind með þemagreiningu. Þeir þættir sem stuðla að kulnun eru fyrst og fremst óskráðar félagslegar og skynrænar kröfur, möskun sem viðbragð við þessum kröfum og stuðningsskortur frá stjórnendum og kerfum. Þeir þættir sem vernda gegn kulnun eru hins vegar sjálfræði og sveigjanleiki, ásamt skýrleika í verkefnum og samskiptum, sem gera konunum kleift að draga úr álagi, endurnýja orku og vinna á eigin forsendum. Stuðningur reyndist oft tilviljunarkenndur og háður einstökum stjórnendum fremur en kerfisbundnum ferlum, og seinkuð greining lá sem bakgrunnsþáttur þvert yfir niðurstöðurnar og virtist magna áhrif álags. Niðurstöðurnar benda til þess að einhverfukulnun kvenna á vinnumarkaði sé fremur skipulagslegt vandamál en einstaklingsbundið. Þær sýna jafnframt að vinnuumhverfi sem býður upp á sveigjanleika, skýrleika og raunverulega inngildingu getur dregið úr kulnun og skapað aðstæður þar sem konur geta þrifist í starfi. Þær benda jafnframt til þess að inngildandi starfsumhverfi, sem tekur mið af taugafjölbreytileika, geti nýst öllum starfsmönnum.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Erla Hlynsdóttir 1978-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Arney Einarsdóttir 1962-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53796