Bifröst University
Réttindi og skyldur seljanda í fasteignaviðskiptum þegar upp koma mygluskemmdir
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um réttindi og skyldur seljanda í fasteignaviðskiptum þegar um er að ræða mygluskemmdir. Markmið hennar er að greina hvernig ábyrgð seljanda er afmörkuð samkvæmt lögum nr. 40/2002 um fasteignakaup, með sérstakri áherslu á samspil gallahugtaksins, upplýsingaskyldu seljanda, aðgæsluskyldu kaupanda og saknæmrar háttsemi. Rannsóknin byggir á hefðbundinni lögfræðilegri aðferð, þar sem lög, lögskýringargögn, fræðirit og dómaframkvæmd Hæstaréttar og Landsréttar eru greind. Sérstök áhersla er lögð á mygluskemmdir sem dæmi um leynda galla sem oft koma ekki í ljós fyrr en eftir afhendingu fasteignar og geta haft bæði fjárhagsleg og heilsufarsleg áhrif. Niðurstöður sýna að ábyrgð seljanda er að verulegu leyti matskennt og byggir á heildstæðu mati á atvikum, þar sem litið er til umfangs galla, orsaka þeirra, vitneskju seljanda og möguleika kaupanda til að greina annmarka. Þrátt fyrir að gallaþröskuldur 18. gr. laga nr. 40/2002 setji almennt lágmark fyrir bótarétti getur saknæm háttsemi seljanda leitt til ábyrgðar óháð umfangi gallans.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Arna Sigurðardóttir 1979-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53805