Back to search

Bifröst University

Endurgjöf um verkefnastýringu í verkfræðifyrirtækjum: Upplifun verkefnastjóra af eðli og þýðingu endurgjafar í starfi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar er að auka skilning á því hvernig verkefnastjórar í verkfræðifyrirtækjum upplifa eðli þeirrar endurgjafar sem þeim er veitt um verkefnastýringu sína og hvaða þýðingu þeir telja að slík endurgjöf hafi í starfi þeirra. Rannsóknin byggir á sex eigindlegum viðtölum við verkefnastjóra í þremur verkfræðifyrirtækjum á Íslandi. Þátttakendur voru valdir með hliðsjón af því að þeir gegndu hlutverki verkefnastjóra og höfðu reynslu sem gat varpað ljósi á rannsóknarspurninguna: Hvernig upplifa verkefnastjórar í verkfræðifyrirtækjum eðli þeirrar endurgjafar sem þeim er veitt um verkefnastýringu sína, og hvaða þýðingu telja þeir að hún hafi í starfi? Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að endurgjöf um verkefnastýringu í verkfræðifyrirtækjum sé margþætt og nátengd verkefnaumhverfinu sjálfu. Hún birtist sjaldnast sem formleg og afmörkuð endurgjöf um verkefnastýringu, heldur fremur sem hluti af daglegum samskiptum, framvindu verkefna, viðbrögðum annarra og óbeinum vísbendingum um traust og ánægju. Þátttakendur lögðu sérstaka áherslu á að endurgjöf birtist í því að fá fleiri verkefni, að aðrir leiti aftur til þeirra, að samskipti séu greið og að samstarf haldi áfram. Jafnframt sýna niðurstöðurnar að þátttakendur upplifa almennt skort á markvissri rýni og formlegri eftirfylgni með verkefnastýringu sinni. Þótt hrós og hvatning séu til staðar og hafi hvetjandi gildi, virðast þau síður styðja við markvissa þróun verkefnastjóra nema þau séu skýrari og tengd því hvað hafi gengið vel og hvað megi bæta. Svarið við rannsóknarspurningunni er því að verkefnastjórar upplifa endurgjöf fyrst og fremst sem óformlega, aðstæðubundna og oft óbeina, en telja hana hafa mikilvæga þýðingu fyrir sjálfstraust, starfsþróun og skilning á eigin frammistöðu. Niðurstöðurnar benda jafnframt til þess að þörf sé á formfastara samtali um verkefnastýringu, þar sem reynsla er dregin saman, verkefni rýnd og lærdómur gerður sýnilegri.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Auður Marín Adolphsdóttir 1999-
Advisor dc:description.advisor
  • Sigurður Blöndal 1959-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 2

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53808

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Auður Marín Adolphsdóttir 1999-. Endurgjöf um verkefnastýringu í verkfræðifyrirtækjum: Upplifun verkefnastjóra af eðli og þýðingu endurgjafar í starfi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53808