Back to search

Bifröst University

Meiri sveigjanleiki, meiri ánægja? Upplifun og ávinningur sveigjanlegs vinnufyrirkomulags í nútíma vinnuumhverfi.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig sveigjanlegt vinnufyrirkomulag hefur áhrif á starfsánægju starfsfólks og hvaða ávinning vinnustaðir upplifa af slíku fyrirkomulagi. Áhersla var lögð á að greina bæði kosti og helstu áskoranir sem fylgja sveigjanleika í nútíma vinnuumhverfi. Rannsóknin er byggð á blandaðri aðferðafræði þar sem stuðst var við eigindleg og megindleg gögn. Tekin voru viðtöl við fjóra stjórnendur og fjóra starfsmenn, auk þess var framkvæmd spurningakönnun þar sem 80 einstaklingar tóku þátt. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sveigjanlegt vinnufyrirkomulag hafi almennt jákvæð áhrif á starfsánægju, líðan og jafnvægi milli vinnu og einkalífs. Starfsmenn upplifa meira frelsi og betri stjórn á eigin tíma, sem getur stuðlað að minni streitu og aukinni vellíðan. Einnig kom fram að sveigjanleiki getur haft jákvæð áhrif á frammistöðu, sérstaklega í störfum sem krefjast sjálfstæðrar vinnu og einbeitingar. Rannsóknin sýnir jafnframt að sveigjanlegt vinnufyrirkomulag felur í sér ákveðnar áskoranir. Þar má helst nefna minni samskipti og tengslamyndun, áskoranir í samvinnu og óljós mörk milli vinnu og einkalífs. Niðurstöðurnar undirstrika því mikilvægi þess að vinnustaðir innleiði sveigjanlegt vinnufyrirkomulag með markvissum hætti; skýrum ramma, reglulegum samskiptum og áherslu á traust og árangursmiðaða stjórnun. Heildarniðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að sveigjanlegt vinnufyrirkomulag sé orðið mikilvægur þáttur í nútíma vinnuumhverfi og geti skapað bæði starfsfólki og vinnustöðum ávinning, að því gefnu að það sé vel skipulagt og stutt með viðeigandi stjórnunarháttum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Vala Björg Evudóttir Guðjónsdóttir 1996-
Advisor dc:description.advisor
  • Sigurður Blöndal 1959-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53811

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Vala Björg Evudóttir Guðjónsdóttir 1996-. Meiri sveigjanleiki, meiri ánægja? Upplifun og ávinningur sveigjanlegs vinnufyrirkomulags í nútíma vinnuumhverfi.. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53811