Back to search

Bifröst University

Vörumerkjavitund og valsett neytenda: Rannsókn á vali á skyndibita. Að hve miklu leyti hefur vörumerkjavitund áhrif á valsett neytenda þegar kemur að vali á skyndibita?

Abstract

dc:description.abstract

Eftir því sem stöðugt bætist í flóru vörumerkja á markaði harðnar samkeppnin um athygli neytenda. Neytendur geta ekki velt fyrir sér öllum þeim vörumerkjum sem í boði eru og þróa því með sér svokallað valsett, það er að segja afmarkaðan hóp vörumerkja sem þeir raunverulega íhuga fyrir endanlega kaupákvörðun. En hversu mikil áhrif hefur vörumerkjavitund virkilega á valsett neytenda og endanlega kaupákvörðun þeirra? Markmið þessarar rannsóknar er að komast að því með því að skoða val neytenda á skyndibita. Til þess að svara þessari spurningu var stuðst við blandaða rannsóknaraðferð með rýnihóp og tveggja þrepa spurningakönnun. Grunnkönnun var fylgt eftir með eftirfylgnikönnun sem send var út á þátttakendur úr fyrri könnuninni tveimur vikum seinna. Fræðileg umfjöllun rannsóknarinnar snýr að neytendahegðun. Þar verður fjallað um hugtök á borð við vörumerkjavitund, valsett og kauphegðun. Einnig verður kafað ofan í áhrifaþætti á kauphegðun og tegundir hennar ásamt því að skoða helstu líkön og kenningar í neytendahegðun. Helstu niðurstöður gefa til kynna að vörumerkjavitund hafi að vissu leyti áhrif á valsett neytenda þar sem þeir eru líklegri til þess að versla við skyndibitastaði sem þeir þekkja vel til. Hins vegar ræðast endanleg kaupákvörðun oft af öðrum aðstæðubundnum þáttum. Vörumerkjavitund er því nauðsynleg forsenda en tryggir ekki kaup ein og sér.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sara Hlín Hilmarsdóttir 1990-
Advisor dc:description.advisor
  • Ragnar Már Vilhjálmsson 1969-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53813

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sara Hlín Hilmarsdóttir 1990-. Vörumerkjavitund og valsett neytenda: Rannsókn á vali á skyndibita. Að hve miklu leyti hefur vörumerkjavitund áhrif á valsett neytenda þegar kemur að vali á skyndibita?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53813