Bifröst University
Sveitarfélagið Fjallabyggð: Sameining Siglufjarðar og Ólafsfjarðar að fenginni tuttugu ára reynslu
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um sameiningu Siglufjarðarkaupstaðar og Ólafsfjarðarbæjar í sveitarfélagið Fjallabyggð árið 2006 og áhrif hennar á rekstur og fjárhagsstöðu sveitarfélagsins til lengri tíma. Markmið rannsóknarinnar er að meta hvort sameiningin hafi leitt til aukinnar hagkvæmni og bættrar fjárhagsstöðu, með sérstakri áherslu á þróun tekna, útgjalda og lykilmælikvarða í rekstri sveitarfélagsins. Rannsóknin byggir á megindlegri greiningu á opinberum gögnum, einkum ársreikningum sveitarfélaganna á tímabilinu 2001 til 2024. Til að tryggja samanburðarhæfni voru fjárhæðir uppreiknaðar á verðgildi ársins 2025. Skoðuð var þróun helstu tekjustofna, útgjalda eftir málaflokkum og fjárhagslegra lykiltalna, auk þess sem tekið var tillit til utanaðkomandi þátta á borð við efnahagshrunið 2008, breytingar á lagaramma sveitarfélaga og opnun Héðinsfjarðarganga árið 2010. Niðurstöður benda til þess að sameiningin hafi ekki leitt til augljósrar lækkunar útgjalda til helstu málaflokka, og því er lítil bein vísbending um hefðbundna rekstrarhagræðingu. Á móti kemur að rekstur sveitarfélagsins hefur að jafnaði verið stöðugur og jákvæður eftir sameiningu. Þá hefur fjárhagsstaða þess styrkst, meðal annars með lægra skuldahlutfalli og hærra veltufé frá rekstri en hjá meðalsveitarfélagi. Niðurstöður rannsóknarinnar benda því til þess að ábati sameiningarinnar birtist fremur í auknum rekstrarstöðugleika og styrkari fjárhagsstöðu en í beinni lækkun útgjalda. Áskoranir séu þó fram undan vegna breytinga á aldurssamsetningu íbúa.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Starri Reynisson 1995-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sævar Ari Finnbogason 1970-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53821