Back to search

Bifröst University

Menning í mótun

Abstract

dc:description.abstract

Rannsóknin fjallar um hvernig tímabundin menningarverkefni geta eflt samfélagskennd, félagsauð og þátttöku íbúa í menningarlífi. Til grundvallar liggur tilviksrannsókn á Gallerý Grind, pop-up útigalleríi sem starfaði í Reykjanesbæ sumarið 2023 sem hluti af tilraunaverkefninu Andrými. Markmiðið var að skapa opinn, aðgengilegan og óformlegan vettvang fyrir listsköpun, samveru og menningarlega þátttöku í vanræktu borgarrými. Rannsóknin byggir á kenningum um „þriðja staðinn“ (Oldenburg), samfélagskennd (McMillan og Chavis), félagsauð (Putnam; Bourdieu), tímabundna borgarhönnun og staðarsköpun, auk tengsla við íslenska og alþjóðlegamenningarstefnu. Beitt var blandaðri aðferðafræði sem samanstóð af sex hálfopnum viðtölum og rafrænni könnun. Eigindleg gögn voru greind með þemagreiningu og megindleg gögn með lýsandi tölfræði. Niðurstöður sýna að Gallerý Grind virkaði sem þriðja rými þar sem óformlegt og sveigjanlegt umhverfi skapaði vettvang fyrir félagsleg samskipti, tilheyrslu og sameiginlega upplifun. Verkefnið stuðlaði að bæði bindandi og brúandi félagsauði og styrkti traust, samvinnu og tengsl milli ólíkra hópa. Könnunin styður þetta og sýnir að meirihluti þátttakenda telur tímabundin menningarverkefni hafa jákvæð áhrif á samfélagskennd, samveru og staðarvitund. Jafnframt komu fram áskoranir sem tengjast fjármögnun, staðsetningu, sýnileika og stjórnsýslu, þar sem verkefnið byggði að mestu á eldmóði einstaklinga fremur en kerfisbundnum stuðningi. Rannsóknin dregur fram mikilvægi þess að sveitarfélög skapi sveigjanlegar stuðningsleiðir fyrir grasrótarverkefni. Hún sýnir jafnframt að tímabundin menningarverkefni geta verið öflugur drifkraftur í samfélagslegri og menningarlegri þróun og veita hagnýta innsýn fyrir menningarstjórnendur og stefnumótendur sem vilja efla þátttöku íbúa og styrkja félagslega innviði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Bergsveinn Þórsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53823

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingvi Hrafn Laxdal Victorsson 1987-. Menning í mótun. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53823