Back to search

Bifröst University

Jafnlaunavottun á Íslandi - áhrif og áskoranir

Abstract

dc:description.abstract

Jafnlaunavottun var lögfest á Íslandi árið 2017 sem hluti af markvissri stefnu stjórnvalda til að draga úr kynbundnum launamun. Með lögum nr. 150/2020 var kveðið á um að fyrirtæki og stofnanir með 25 eða fleiri starfsmenn skyldu annaðhvort fá jafnlaunavottun samkvæmt staðlinum ÍST 85 eða jafnlaunastaðfestingu frá Jafnréttisstofu. Með því varð Ísland fyrst allra þjóða til að skylda atvinnurekendur með fleiri en 25 starfsmenn til að innleiða og votta jafnlaunakerfi hjá sér. Markmið þessa verkefnis var að greina hvernig það hefur gengið í reynd að uppfylla þessar kröfur og hvort fyrir-tæki og stofnanir telji vottunina skila þeim ávinningi sem lagt var upp með. Hver áhrifin af jafnlaunavottuninni eru og áskoranir sem fyrirtæki með jafnlaunavottun hafa tekist á við. Niðurstöður benda til þess að jafnlaunavottun hafi haft jákvæð áhrif að mati margra svarenda, meðal annars með aukinni formfestu og skýrari launaákvörðunum. Jafnframt komu fram áskoranir sem tengdust tíma, kostnaði og umfangi innleiðingar-innar. Rannsóknin byggir á megindlegri aðferð. Spurningakönnun var send til fyrirtækja og stofnanna á Íslandi sem höfðu jafnlaunavottun samkvæmt skrá Jafnréttisstofu. Könnunin var send til 642 fyrirtækja og stofnanna og bárust 65 svör. Henni er ætlað að varpa ljósi á hverjar voru helstu áskoranirnar við innleiðingu jafnlaunavottunar hjá fyrirtækinu/stofnuninni og hver áhrifin voru á fyrirtækið/stofnunina. Helstu niðurstöður sýna að flest fyrirtæki og stofnanir voru ánægð með jafnlaunavottunina og áhrif hennar á eigin starfsemi, en það hafi verið áskoranir í innleiðingu hennar sem kostuðu tíma og fé sem gat haft mikil áhrif á sum fyrirtæki og stofnanir.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • María Vera Gísladóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Bergsveinn Þórsson 1983-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53824

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

María Vera Gísladóttir 1982-. Jafnlaunavottun á Íslandi - áhrif og áskoranir. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53824