Bifröst University
Kynferðisbrot gegn börnum: „Hverjar eru skyldur löggæsluyfirvalda að láta framkvæma skýrslu af barni fyrir dómi þegar fyrir liggur grunur um kynferðisbrot?“
Abstract
dc:description.abstractÍ ritgerð þessari er fjallað um skyldur löggæsluyfirvalda til að tryggja að skýrslutökur barna fari fram fyrir dómi þegar grunur leikur á um kynferðisbrot gegn þeim. Sérstök áhersla er á brot gegn 202. gr. almennra hegningarlaga nr. 19/1940 þar sem brotaþoli er barn undir 15 ára aldri, einkum á leikskólaaldri. Markmiðið er að varpa ljósi á þessar skyldur og greina vægi framburðar barns við sönnunarmat. Beitt var blandaðri aðferðafræði og hefðbundinni lögfræðiaðferð. Greindir voru 41 héraðsdómar frá árunum 2021–2025 og tekin viðtöl við fagaðila, m.a. lögreglu, starfsmann barnaverndar, lögmann og sálfræðinga í Barnahúsi. Helstu niðurstöður sýna að þegar sönnun byggist eingöngu á framburði brotaþola og ákærði neitar sök eru um 82% líkur á sýknu. Sakfelling byggist yfirleitt á trúverðugum framburði barns ásamt staðfestandi gögnum, t.d. rafrænum samskiptum, og er þá hlutfall sakfellinga hátt. Þá eru 98% sakborninga karlmenn og 91% brotaþola stúlkur. Rannsóknin bendir einnig til þess að aldur og þroski barns hafi veruleg áhrif á hvort skýrsla sé tekin fyrir dómi og hvernig hún fer fram. Höfundur dregur þá ályktun að takmörkuð geta ungra barna, sér í lagi þeirra sem eru undir þriggja og hálfs árs aldri, til að veita sönnun setji þau í mjög viðkvæma stöðu í málum er varða kynferðisbrot gegn þeim.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Jóna Hólmarsdóttir 1994-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Unnar Steinn Bjarndal Björnsson 1981-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53825