Back to search

Bifröst University

Er markaðslegur grundvöllur fyrir Padelvöllum á Akureyri?

Abstract

dc:description.abstract

Á undanförnum árum hefur padel notið ört vaxandi vinsælda víða um heim og einnig á Íslandi þar sem uppbygging padelvalla hefur nánast einkum átt sér stað á höfuðborgarsvæðinu. Þetta vekur spurningar um hvort markaðslegur grundvöllur sé fyrir uppbyggingu padelvalla á minni og staðbundnum mörkuðum, svo sem á Akureyri. Markmið þessarar rannsóknar var að meta hvort nægileg eftirspurn, raunhæfur markhópur og rekstrarlegar forsendur væru til staðar fyrir uppbyggingu padelvalla á Akureyri. Rannsóknin byggði á megindlegri rannsóknaraðferð þar sem gögnum var safnað með rafrænni spurningakönnun sem lögð var fyrir einstaklinga með tengsl við Akureyri og nærliggjandi svæði. Alls bárust 63 svör. Könnunin beindist að vitund og þekkingu á padel, viðhorfum til íþróttarinnar, líklegri notkun padelaðstöðu, greiðsluvilja og helstu hindrunum fyrir þátttöku. Niðurstöður sýndu að vitund um padel var mikil, þar sem 90,5% þátttakenda höfðu heyrt um íþróttina, og viðhorf til hennar voru almennt jákvæð. Greiðsluvilji reyndist að mestu liggja innan sambærilegs verðbils og þekkist annars staðar á Íslandi, en verð var jafnframt algengasta hindrunin fyrir reglulegri þátttöku ásamt skorti á tíma og spilafélaga. Í heild benda niðurstöðurnar til þess að ákveðinn markaðslegur grundvöllur gæti verið til staðar fyrir padelvelli á Akureyri. Rekstrarhæfi slíkrar uppbyggingar myndi þó ráðast af þáttum á borð við verðlagningu, aðgengi, félagslegt skipulag og getu til að umbreyta almennum áhuga í reglulega notkun. Rannsóknin veitir því mikilvægar vísbendingar um mögulega eftirspurn og getur nýst sem grunnur að frekari fjárhagslegri og rekstrarlegri greiningu á uppbyggingu padelaðstöðu á staðbundnum mörkuðum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elvar Goði Yngvason 2001-
Advisor dc:description.advisor
  • Brynjar Þór Þorsteinsson 1970-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53836

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elvar Goði Yngvason 2001-. Er markaðslegur grundvöllur fyrir Padelvöllum á Akureyri?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53836