Back to search

Bifröst University

Hvernig ná viðvaranir um netsvik til viðskiptavina? Greining á miðlun íslenskra banka

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að kanna hvernig íslenskir bankar miðla viðvörunum um netsvik á heimasíðum sínum og samfélagsmiðlum, ásamt því að skoða hvernig viðskiptavinir skynja og bregðast við slíkum skilaboðum. Rannsóknin notaðist við blandaða aðferðafræði; hún samanstóð af innihaldsgreiningu á efni frá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbankanum frá 1. janúar 2024 – 31. desember 2025, ásamt því að framkvæma hálfopin viðtöl við níu viðskiptavini á aldrinum 19 til 81 árs. Fræðilegur grunnur rannsóknarinnar er byggður á rannsóknum á opinberum fræðsluskilaboðum (PSA), skilaboðum byggðum á tilfinningum eða rökum, þriðju persónu áhrifunum og hegðunarbreytingum. Niðurstöður innihaldsgreiningar sýna að bankarnir notast bæði við skilaboð byggð á tilfinningum og rökum. Skilaboð byggð á rökum á textaformi eru ríkjandi á heimasíðum bankanna, á meðan sjónræn og sögudrifin nálgun kemur oftar fram á samfélagsmiðlum. Í viðtölum kom í ljós að skilaboð á samfélagsmiðlum ná til yngri hópa en skilaboð í sjónvarpi eða útvarpi ná betur til þeirra eldri. Heimasíður virðast sjaldan nýtast vel til að miðla viðvörunum um netsvik. Flestir viðmælendur töldu að áhrifaríkasta leiðin til að ná til þeirra væri í gegnum raunverulegar sögur og stutt myndbönd. Þriðju persónu áhrifin voru áberandi hjá sumum viðmælendum, sérstaklega þeim sem litu á sig sem tæknivædda einstaklinga, sem getur leitt til minni móttækileika gagnvart viðvörunum um netsvik. Hegðunarbreyting var líklegust meðal þeirra sem skynjuðu eigin áhættu og fengu skýrar ráðleggingar á réttum tíma, til dæmis í gegnum smáforrit bankanna eða með tölvupósti. Rannsóknin mælir með markhópagreindri miðlun, með sögum byggðum á tilfinningum sem innihalda hnitmiðaðar leiðbeiningar. Einnig ætti að leggja áherslu á að skilaboðin komi frá trúverðugum sendanda en ekki eingöngu sem markaðsefni frá bönkunum. Það er mikilvægt að styrkja trúverðugleika skilaboðanna og gæta þess að senda þau í hóflegu magni til að koma í veg fyrir að fólk verði ónæmt fyrir viðvörunum. Slík nálgun eykur líkur á að skilaboðin fái athygli, byggi upp traust og leiði til viðeigandi viðbragða, sem styður aukið netöryggi í íslensku samhengi. Lykilorð: Netsvik; Miðlun viðvarana; Samfélagsmiðlar; Opinber fræðsluskilaboð (PSA); Þriðju persónu áhrif; Hegðunarbreyting.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Thelma Dögg Pedersen 1991-
Advisor dc:description.advisor
  • Guðbjörg Hildur Kolbeins 1967-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53837

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Thelma Dögg Pedersen 1991-. Hvernig ná viðvaranir um netsvik til viðskiptavina? Greining á miðlun íslenskra banka. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53837