Bifröst University
Notkun mállíkana og valdra grunngagna við gerð áhættumats vatnsveitna
Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hvernig stafræn ferli, byggð á völdum grunngögnum í RAG-módeli og mállíkani, gætu stutt við gerð samræmds áhættumats í rekstri vatnsveitna á Íslandi. Rannsóknin var unnin sem tilviksrannsókn þar sem þróað og prófað var samtalsdrifið frumgerðarkerfi sem nýtti skipulagða öflun sérfræðiálits í gegnum samtalsviðmót ásamt lagalegum og faglegum heimildum til að byggja upp heildstæða kerfissýn á áhættu. Niðurstöðurnar benda til að aðferðin hafi reynst raunhæf og nytsamleg. Kerfið gat á skömmum tíma tengt saman fræðileg viðmið og svör viðmælenda og umbreytt þeim í skipulagða niðurstöðu sem komst nálægt því að vera fullbúið áhættumat. Enn fremur benda niðurstöður til að aðferðin geti brúað bil milli dreifðrar staðbundinnar þekkingar og þeirrar formfestu sem stýring áhættu krefst, sérstaklega þar sem stjórnsýsla er lítil og bolmagn til umfangsmikillar greiningarvinnu takmarkað. Helstu takmarkanir felast í því að gæði niðurstaðna ráðast af gæðum þeirra gagna sem fyrir liggja og að aðferðin krefst áfram mannlegrar yfirferðar. Helsta framlag rannsóknarinnar er að sýna að samtalsdrifið og RAG-stutt kerfi geti verið raunhæfur grunnur að því að færa áhættumat úr því að vera stakt verkefni yfir í að vera samfelldur ferill í rekstri vatnsveitna.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Pálmi Sigurðsson 1977-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Sóley Kaldal 1983-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/53842