Back to search

Bifröst University

Rými fyrir sköpun og þroska: Hlutverk skapandi frístunda í lífi barna á Íslandi

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar er að kanna gildi, aðgengi og viðurkenningu skapandi frístunda fyrir börn á Íslandi út frá sjónarmiðum foreldra og fagfólks sem starfar á vettvangi lista og menningar. Rannsóknin leitast við að varpa ljósi á hvernig skapandi starf getur stuðlað að þroska, vellíðan og félagslegri þátttöku barna og hvaða hindranir eða tækifæri einkenna slíkt starf í íslensku samhengi. Rannsóknin byggir á eigindlegri rannsóknaraðferð þar sem gagnaöflun fór fram með opnum rafrænum spurningum til foreldra, sem voru hannaðar í anda hálfopinna viðtala og skriflegum, hálfopnum viðtölum við fagfólk sem starfar innan menningar- og listastofnana. Þessi nálgun er í samræmi við eigindlegar rannsóknir þar sem rafræn svör eru skilgreind sem hálfopin rafræn viðtöl þegar þau fela í sér frjáls svör í skrifuðum texta fremur en fyrirfram skilgreinda kvarða. Gagnagreining byggði á þemagreiningu samkvæmt Braun og Clarke (2006). Niðurstöður sýna að skapandi frístundir hafa veigamikið gildi fyrir börn, þar sem þær efla sjálfstraust, félagsfærni, ímyndunarafl og skapa vettvang fyrir sjálfstjáningu og sköpun í anda hugmynda Dewey (1934/2005) og Eisner (2002). Foreldrar og fagfólk voru sammála um mikilvægi þess að tryggja jafnt aðgengi að skapandi starfsemi og að styrkja faglegar stoðir slíks starfs. Helstu hindranir tengdust kostnaði, framboði og skorti á viðurkenningu í samfélaginu. Heildarniðurstöðurnar benda til þess að skapandi frístundir hafi bæði einstaklingsbundið og samfélagslegt gildi. Þær eru ekki einungis vettvangur fyrir listsköpun heldur einnig mikilvægt tækifæri til að efla menningarauð, félagslega þátttöku og jafnrétti barna í samfélaginu.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aþena Arna Ágústsdóttir 1999-
Advisor dc:description.advisor
  • Erla Rún Guðmundsdóttir 1989-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/53846

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aþena Arna Ágústsdóttir 1999-. Rými fyrir sköpun og þroska: Hlutverk skapandi frístunda í lífi barna á Íslandi. 2026. https://hdl.handle.net/1946/53846