Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar rannsóknar var að kanna hvort að með aukinni reynslu af Ozempic og auknum rannsóknum á áhrifum þess hafi umfjöllun inni á samfélagsmiðlum breyst á síðastliðnum árum. Við framkvæmd þessarar rannsóknar voru 250 myndbönd innihaldsgreind sem hlaðið var upp á samfélagsmiðlinn TikTok. Kenningin um innrömmunn (e. framing theory) eftir Erving Goffman (1974) var notuð til þess að túlka niðurstöður. Með henni er hægt að greina hvernig upplýsingar eru settar fram á ákveðin máta til þess að passa inn í ákveðin ramma, og hvaða áhrif það kann að hafa á þann sem tekur við skilaboðunum. Rannsóknarspurning sem var sett fram var því eftirfarandi: Hvernig hefur umfjöllun um sykursýkislyfið Ozepmic verið römmuð inn undir myllumerkinu #ozempic á Tiktok á tímabilinu 2024-2026? Niðurstöður sýna að þyngdartap er mikið til umfjöllunar og lyfið er að mestu leyti rætt innan útlits- og lífstílsramma. Niðurstöðurnar benda einnig til þess að jákvæð ímynd Ozempic á samfélagsmiðlum sé ríkjandi og að það sé ekki tímabundið heldur hluti af stöðugri framsetningu lyfsins þar inni. Lykilorð: Ozempic, TikTok, Samfélagsmiðlar, Innrömmun, Semaglutide o.fl.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Petra Reykjalín Helgadóttir 2000-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Andrea Guðmundsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/54538