Back to search

Bifröst University

Kerfi á krossgötum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessarar rannsóknar var að varpa ljósi á viðbrögð innan skóla- og frístundastarfs við krefjandi hegðun barna, með sérstakri áherslu á verklag, stuðningskerfi og áfallamiðaða nálgun. Leitast var við að leggja grunn að hagnýtri handbók sem styður við samræmd, fagleg og gagnreynd viðbrögð í starfi með börnum. Rannsóknin byggði á blandaðri aðferðafræði. Annars vegar var framkvæmd fræðileg greining á fyrri rannsóknum og fræðilegum sjónarmiðum sem varða áfallamiðaða nálgun, seiglu barna og áhættustjórnun samkvæmt alþjóðlega viðurkenndum stöðlum, einkum ISO 31000. Hins vegar var gerð megindleg könnun meðal stjórnenda í skóla- og frístundastarfi ásamt eigindlegum viðtölum við lykilhagsmunaaðila sem tengjast málefninu. Niðurstöður rannsóknarinnar sýna að krefjandi hegðun barna er algengur þáttur í daglegu starfi og getur haft veruleg áhrif á öryggi, líðan og starfsumhverfi fagfólks. Þær gefa jafnframt til kynna að þótt verkferlar séu víða til staðar sé innleiðing þeirra ekki ávallt nægilega skýr, samræmd eða kerfisbundin. Þá kom í ljós þörf fyrir markvissara áhættumat, skráningu atvika og skýrari stuðning við starfsfólk. Meginályktun rannsóknarinnar er sú að árangursrík viðbrögð við krefjandi hegðun barna krefjist samþættingar áfallamiðaðrar nálgunar, faglegs hyggjumats og kerfisbundins ramma fyrir viðbrögð og áhættustjórnun. Rannsóknin leggur þannig fram fræðilegt framlag með því að undirstrika mikilvægi slíkrar samþættingar. Enn fremur felur hún í sér hagnýtt framlag í formi handbókar sem er ætlað að styðja starfsfólk sem starfar með börnum við að bregðast við krefjandi hegðun á skýrari, öruggari og samræmdari hátt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Guðrún Vala Bílddal Jónsdóttir 1980-
  • Guðrún Björk Freysteinsdóttir 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Ásthildur Elva Bernharðsdóttir 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/54539

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-18
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Guðrún Vala Bílddal Jónsdóttir 1980-; Guðrún Björk Freysteinsdóttir 1980-. Kerfi á krossgötum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/54539