Bifröst University
Frá sumarstarfi til starfsframa: Áhrif þátttöku í skapandi sumarstörfum á andlega líðan, sjálfsálit og framtíðarsýn ungs skapandi fólks á Íslandi
Abstract
dc:description.abstractMarkmið rannsóknarinnar var að kanna áhrif þátttöku í Skapandi sumarstörfum á andlega líðan, sjálfsálit og framtíðarsýn ungs skapandi fólks á Íslandi. Skapandi sumarstörf eru list- og menningarverkefni á vegum sveitarfélaga þar sem ungmenni fá tækifæri til að vinna að eigin skapandi verkefnum yfir sumartímann. Rannsóknin byggði á fyrir-eftir rannsóknarsniði (e. pre-post design) þar sem tveir rafrænir spurningalistar voru lagðir fyrir þátttakendur í upphafi og lok sumars 2025. Notast var við WHO-5 vellíðunarstuðulinn og sjálfsálitskvarða Rosenbergs auk sérsniðinna spurninga um framtíðarsýn. Þátttakendur voru 73 ungmenni á aldrinum 18–25 ára í fimm sveitarfélögum og svöruðu 30 fyrri könnuninni og 13 þeirri síðari. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að þátttaka í skapandi sumarstörfum hafi jákvæð áhrif á andlega líðan, sjálfsálit og framtíðarsýn þátttakenda. Sérstaklega kom fram aukin trú á eigin hæfni og sterkari sýn á listsköpun sem raunhæfan starfsferil. Í lok sumars töldu allir þátttakendur listsköpun raunhæfan framtíðarstarfsferil og 91% sögðust eiga auðveldara með að sjá fyrir sér framtíð í skapandi greinum eftir þátttökuna. Þrátt fyrir takmarkanir rannsóknarinnar, meðal annars lítið úrtak og lágt svarhlutfall, benda niðurstöðurnar til þess að skapandi sumarstörf geti verið mikilvægt valdeflandi úrræði fyrir ungt listafólk og haft jákvæð áhrif á líðan, sjálfsmynd og framtíðarsýn þess.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Klara Ósk Elíasdóttir 1985-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Andrea Guðmundsdóttir 1990-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 6Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/54540