Back to search

Bifröst University

Hvað einkennir góða áhöfn?

Abstract

dc:description.abstract

Áhafnir frystitogara starfa í krefjandi teymisumhverfi þar sem samhæfing, traust, skýr samskipti og ábyrgð geta haft mikla þýðingu fyrir daglega virkni hópsins. Í fræðilegri umræðu um teymi hefur sálrænt öryggi verið tengt opnum samskiptum, lærdómi, upplýsingamiðlun og frammistöðu, en hlutverkaskýrleiki getur dregið úr óvissu og stutt við samhæfingu. Þá hefur starfsánægja verið tengd jákvæðum starfsviðhorfum og frammistöðu. Í samhengi áhafna á sjó geta þessir þættir haft sérstaka þýðingu þar sem áhafnarmeðlimir vinna, dvelja og hvílast í sama afmarkaða rými yfir lengri tíma. Markmið rannsóknarinnar var að kanna tengsl sálræns öryggis, hlutverkaskýrleika, starfsánægju og mats sjómanna á frammistöðu eigin áhafnar meðal sjómanna á íslenskum frystitogurum. Niðurstöður sýndu jákvæð og marktæk tengsl milli allra meginbreyta rannsóknarinnar. Sjómenn sem upplifðu meira sálrænt öryggi, meiri hlutverkaskýrleika og meiri starfsánægju mátu frammistöðu eigin áhafnar með jákvæðari hætti. Þegar breyturnar voru skoðaðar saman höfðu sálrænt öryggi og hlutverkaskýrleiki sjálfstæð tengsl við mat á frammistöðu eigin áhafnar, en starfsánægja reyndist ekki sjálfstæður marktækur forspárþáttur í líkaninu. Rannsóknin veitir innsýn í félagslegt starfsumhverfi áhafna á íslenskum frystitogurum og bendir til þess að samskipti, traust og skýr hlutverk geti haft þýðingu í krefjandi teymisumhverfi á sjó. Niðurstöður þarf þó að túlka með hliðsjón af sjálfsmati, þversniðssniði rannsóknarinnar, huglægu mati þátttakenda á eigin áhöfn og takmörkuðu innra samræmi mælikvarðans á sálrænu öryggi. Lykilorð: sálrænt öryggi, hlutverkaskýrleiki, starfsánægja, frammistaða áhafnar, frystitogarar, sjómenn

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Ingunn Lára Ívarsdóttir 1988-
Advisor dc:description.advisor
  • Þóra Þorgeirsdóttir 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/54543

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Ingunn Lára Ívarsdóttir 1988-. Hvað einkennir góða áhöfn?. 2026. https://hdl.handle.net/1946/54543