Bifröst University
From Security-Relevant Information to Strategic Intelligence: Analytical Capacity for National Security Decision-Making in Iceland
Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi rannsakar hvernig upplýsingum sem hafa þýðingu fyrir íslenskt þjóðaröryggi er umbreytt í stefnumiðaða þjóðaröryggisgreiningu fyrir ákvarðanatöku stjórnvalda. Hún greinir styrkleika ferlisins og hvar ábyrgð, samþætting og miðlun verða óskýr. Rannsóknin er eigindleg tilviksrannsókn sem byggir á lögum, stefnum, opinberum skýrslum og stofnanagögnum, auk hálfstaðlaðra sérfræðiviðtala við sjö þátttakendur með reynslu af stjórnsýslu, öryggis- og greiningarstarfi, þingstörfum og mikilvægum innviðum. Greiningin rekur ferlið frá skilgreiningu greiningarþarfar þar til niðurstöðunni er miðlað til stjórnvalda. Hún metur einnig hvers konar afurðir verða til og hvaða skilyrði styðja greiningargetu. Niðurstaðan er að á Íslandi er dreift stofnanakerfi sem verður brotakennt á mörkum stofnana og málaflokka. Lögregla, netöryggisaðilar, varnarmálayfirvöld og almannavarnir búa yfir sérhæfðri þekkingu og greiningargetu. Alþjóðlegur upplýsingaaðgangur, stuttar boðleiðir og bein samskipti styrkja samstarfið. Lykilstofnanir vinna reglulega sameiginleg stöðuyfirlit og samþætta upplýsingar þegar tiltekin mál kalla á það. Dýpri greining þvert á málaflokka er þó að mestu verkefnabundin. Enginn einn aðili ber varanlega ábyrgð á að skilgreina greiningarþarfir stjórnvalda, samþætta upplýsingar úr ólíkum geirum og skila reglulega heildstæðu mati. Í sumum greiningarafurðum er gerður greinarmunur á líkum þess að atburður eigi sér stað og trausti á þeim heimildum og þeirri greiningu sem matið byggist á. Þessum greinarmun er þó ekki miðlað með samræmdum hætti til allra viðtakenda. Stjórnvöld þurfa því að skýra hver ber ábyrgð á samþættingu, tryggja viðkomandi aðgang að upplýsingum og koma á sameiginlegum greiningarstöðlum, ábyrgðarlínum og ferli fyrir endurgjöf.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sólrún Hulda Guðmundsdóttir Proppé 1997-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Gregory Joseph Falco
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- en
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/54544