Back to search

Bifröst University

„Áhrif CrossFit á sjálfsmynd kvenna, sjálfsmat, líkamsímynd og upplifun af eigin styrk og hæfni."

Abstract

dc:description.abstract

Þrátt fyrir vaxandi vinsældir CrossFit á Íslandi og erlendis er lítið vitað um hvernig þátttaka í íþróttinni tengist sjálfsmynd kvenna, og viðfangsefnið hefur ekki áður verið rannsakað meðal íslenskra kvenna. Þessi B.A. ritgerð leitast við að svara spurningunni: hvernig tengist þátttaka í CrossFit sjálfsmati, líkamsímynd og upplifun kvenna af eigin styrk og hæfni? Fyrri erlendar rannsóknir hafa að mestu skoðað þessa þætti í sitthvoru lagi fremur en í samhengi hver við annan. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð þar sem rafrænn spurningalisti, byggður meðal annars á Rosenberg sjálfsmatskvarðanum og Body Appreciation Scale 2 ásamt staðhæfingum sérsniðnum að CrossFit, var lagður fyrir konur sem stunda eða hafa stundað CrossFit á Íslandi. Alls bárust 130 svör sem greind voru bæði með lýsandi tölfræði og samanburði milli hópa. Niðurstöður sýna að þátttakendur lýsa almennt jákvæðu sjálfsmati, sterkri virðingu fyrir eigin líkama og mjög jákvæðri upplifun af eigin styrk og getu, þar sem áhersla er lögð á virkni fremur en útlit. Tengslin við sjálfsmat og líkamsímynd styrktust jafnt og þétt eftir því sem hæfni og reynsla þátttakenda í íþróttinni jókst, á meðan upplifun af CrossFit sem valdeflandi umhverfi var til staðar nánast frá upphafi þátttöku. Félagslegur samanburður við aðrar konur reyndist þó algengur þrátt fyrir jákvæða heildarmynd, og því meiri áhrif sem þátttakendur upplifðu frá samfélagsmiðlum tengdum CrossFit, því lakara mældust bæði sjálfsmat og líkamsímynd. Rannsóknin undirstrikar að CrossFit geti verið vettvangur sem styður jákvæða sjálfsmynd kvenna, en að konur séu þó ekki að fullu lausar undan félagslegum samanburði og útlitstengdum áhrifum, jafnvel innan umhverfis sem leggur áherslu á styrk fremur en útlit. Niðurstöðurnar geta nýst þjálfurum og eigendum CrossFit stöðva við að skapa umhverfi sem styður frekar við jákvætt sjálfsmat en óheilbrigðan samanburð.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Unnur Magnúsdóttir 1989-
Advisor dc:description.advisor
  • Andrea Guðmundsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/54546

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-18
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Unnur Magnúsdóttir 1989-. „Áhrif CrossFit á sjálfsmynd kvenna, sjálfsmat, líkamsímynd og upplifun af eigin styrk og hæfni.". 2026. https://hdl.handle.net/1946/54546