Back to search

Bifröst University

„Ógeðslegur bransi sem skortir allar verkalýðsreglur“ Upplifun tæknifólks af atvinnuöryggi í kvikmynda- og myndmiðlageiranum

Abstract

dc:description.abstract

Íslenski kvikmynda- og myndmiðlageirinn hefur vaxið og öðlast aukinn sýnileika á undanförnum árum. Slíkur vöxtur tryggir þó ekki sjálfkrafa að starfsfólki bjóðist reglulegar tekjur, stöðugt verkefnaframboð eða raunhæfir möguleikar á langtímastörfum. Takmörkuð þekking liggur fyrir um það hvernig fólk í tæknilegum störfum innan geirans upplifir eigið atvinnuöryggi og möguleika á sjálfbærum starfsferli. Markmið rannsóknarinnar var að kanna upplifun tæknifólks í íslenska kvikmynda- og myndmiðlageiranum af atvinnuöryggi. Áhersla var lögð á verkefnaframboð, tekjuöryggi, ráðningarform, samningsstöðu, tengslanet og möguleika til að byggja upp sjálfbæran feril. Rannsóknin byggðist á fræðilegri umfjöllun um atvinnuöryggi, ótrygga og verkefnabundna vinnu og sérkenni skapandi vinnumarkaðar. Notast var við megindlega rannsóknaraðferð og gagna aflað með rafrænni spurningakönnun. Þátttakendur voru einstaklingar, 18 ára og eldri, sem höfðu starfað við launuð tæknileg störf í íslenskri kvikmynda- og myndmiðlaframleiðslu á síðustu fimm árum. Alls bárust 102 innsendingar, en eftir skimun upplýsts samþykkis og inntökuskilyrða taldi endanlegt greiningarúrtak 73 þátttakendur. Gögn voru greind með lýsandi tölfræði og opin svör flokkuð eftir megininntaki. Niðurstöður benda til þess að atvinnuöryggi þátttakenda sé takmarkað og mótist einkum af ófyrirsjáanlegu verkefnaframboði, óreglulegum tekjum, ójafnri samningsstöðu og mikilvægi tengslaneta. Meirihluti þátttakenda hafði áhyggjur af nægilegum fjölda verkefna á næstunni, upplifði óvissu um langtímatækifæri og gat aðeins séð verkefnaframboð sitt þrjá mánuði eða skemur fram í tímann. Þá sögðu 72,6% tímabil án verkefna valda fjárhagslegri óvissu og 75,3% töldu sveiflur í verkefnaframboði hafa neikvæð áhrif á starfsöryggi. Aðeins 8,3% töldu aðgengi að verkefnum gagnsætt og sanngjarnt og 9,6% myndu mæla með því við aðra að byggja upp starfsferil innan geirans. Niðurstöður rannsóknarinnar benda til þess að aukið efnahagslegt og menningarlegt vægi kvikmynda- og myndmiðlageirans tryggir ekki sjálfkrafa atvinnuöryggi þeirra sem starfa innan hans. Rannsóknin er framlag til umræðu um starfsumhverfi tæknifólks, gagnsæi í aðgengi að verkefnum, samningsstöðu og sjálfbærni starfsferla innan íslenska kvikmynda- og myndmiðlageirans. Lykilorð: Atvinnuöryggi, kvikmynda- og myndmiðlageirinn, verkefnabundin vinna, ótrygg vinna, tekjuöryggi, tæknifólk.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helena Hafsteinsdóttir 1997-
Advisor dc:description.advisor
  • Andrea Guðmundsdóttir
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/54548

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-18
Source record
OAI-PMH GetRecord
related terms
citation

Helena Hafsteinsdóttir 1997-. „Ógeðslegur bransi sem skortir allar verkalýðsreglur“ Upplifun tæknifólks af atvinnuöryggi í kvikmynda- og myndmiðlageiranum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/54548