Back to search

Bifröst University

Inngilding skynsegin fólks í menningarviðburðum

Abstract

dc:description.abstract

Markmið rannsóknarinnar var að varpa ljósi á hvernig skynsegin fólk upplifir menningarþátttöku á Íslandi og setja fram tillögur að hagnýtum leiðbeiningum fyrir skipuleggjendur menningarviðburða. Notuð var blönduð aðferð: spurningakönnun meðal skynsegin fólks búsetts á Íslandi (N = 106) ásamt eigindlegum gögnum frá fjórum lykilviðmælendum með ólík sjónarhorn á menningarþátttöku, tveimur munnlegum hálfstýrðum viðtölum og tveimur skriflegum svörum við sama viðtalsramma. Niðurstöður benda til þess að skynsegin fólk sé hópur sem hefur ríkan áhuga á menningarlífi og tekur þátt í því, en að þátttökunni fylgi oft verulegur kostnaður í formi skynræns og félagslegs álags. Meirihluti þátttakenda sagðist oft sleppa viðburðum af skynrænum eða félagslegum ástæðum. Þátttakendur töldu sig fremur velkomin á viðburði en upplifðu síður að þau gætu verið þau sjálf eða að skipuleggjendur tækju tillit til fólks eins og þeirra. Helstu hindranir voru þrengsli, félagslegur þrýstingur og væntingar, hávaði, ófullnægjandi upplýsingar og ófyrirsjáanleiki, en tvær þær síðastnefndu snúa að skipulagi og miðlun fremur en að rýminu sjálfu. Það sem helst studdi þátttöku var rými undan mannmergð, greiðar útgönguleiðir, fyrirsjáanleiki, upplýsingar fyrirfram og nærgætin framkoma starfsfólks. Niðurstöðurnar benda til þess að ólíkar hindranir eigi sér sameiginlegan kjarna í upplifun af öryggi, sem greina má í fjórar samverkandi víddir: upplýsingatengt öryggi, skynrænt öryggi, félagslegt öryggi og öryggi til útgöngu. Á grundvelli þeirra eru settar fram tillögur að leiðbeiningum sem fylgja ferðalagi þátttakandans, frá ákvörðun um að mæta til endurheimtar og endurkomu. Margar þeirra aðgerða sem þátttakendur telja áhrifaríkastar snúa fremur að verklagi, upplýsingagjöf og vitund en að kostnaðarsömum breytingum, en ekki var lagt sjálfstætt mat á kostnað aðgerðanna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Elísabet Jana Stefánsdóttir 1993-
Advisor dc:description.advisor
  • Anna Hildur Hildibrandsdóttir 1962-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/54551

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Elísabet Jana Stefánsdóttir 1993-. Inngilding skynsegin fólks í menningarviðburðum. 2026. https://hdl.handle.net/1946/54551