Abstract
dc:description.abstractRitgerð þessi fjallar um fræðilegar undirstöður, markaðshönnun og tæknilega innviði spámarkaða með sérstakri áherslu á innreið vettvangsins Polymarket á almennan markað. Markmið rannsóknarinnar er að svara því hvernig nútíma spámarkaðir samtvinna hagfræðilegar kenningar um upplýsingasöfnun og dreifða bálkakeðjutækni, og að hvaða leyti þeir veita áreiðanlegri og hraðari upplýsingamiðlun en hefðbundnar spáaðferðir á borð við skoðanakannanir og sérfræðinganefndir. Rannsóknin byggir á eigindlegri kerfisgreiningu og þverfaglegri fræðilegri samantekt úr fjármálahagfræði, markaðsörbyggingu, bálkakeðjutækni og lögfræði. Helstu niðurstöður sýna að með því að krefjast raunverulegra fjárhagslegra hagsmuna (skin in the game) og nýta verðkerfið í anda Hayek ná spámarkaðir að samþætta dreifða þekkingu og bregðast við nýjum upplýsingum í rauntíma með marktækt minni spávillu (lægri Brier-stigum) en skoðanakannanir. Tæknilegir innviðir Polymarket á Polygon-netinu, ásamt Gnosis Conditional Token Framework, blandaðra tilboðsbóka (Hybrid CLOB) og dreifðum véfréttum (UMA Optimistic Oracle), leysa helstu flöskuhálsa eldri markaða varðandi lausafé, færslukostnað og mótaðilaáhættu. Niðurstöðurnar benda þó til þess að markaðirnir búi við atferlisskekkjur, einkum ofmat á ólíklegum atburðum (favorite-longshot bias), og hættu á gagnvirku samspili (e. reflexivity). Þá skapar ólík afstaða eftirlitsaðila til fjármálaafleiða og veðmála ásamt nýjum fordæmum (á borð við dómsmál Kalshi) áframhaldandi regluverksóvissu. Þrátt fyrir þessa veikleika staðfestir rannsóknin að spámarkaðir séu orðnir að einu öflugasta tæki samtímans til að meta óvissu.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Höskuldur Jónsson 1993-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Húni Jóhannesson 1982-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 2Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/54552