Back to search

Bifröst University

Ákvörðun refsinga, sérstaklega með hliðsjón af sifjatengslum geranda og brotaþola

Abstract

dc:description.abstract

Í vissum tilfellum getur verknaður gagnvart nátengdum horft til refsiþyngingar fremur en refsilækkunar. Almennum hegningarlögum frá 12. febrúar 1940, nr. 19., var breytt 3. apríl 2006, þar sem sett var inn ákvæði vegna heimilisofbeldis til refsihækkana, en þar segir: Hafi verknaður beinst að karli, konu eða barni sem eru nákomin geranda, og tengsl þeirra þykja hafa aukið á grófleika verknaðarins, skal að jafnaði taka það til greina til þyngingar refsingunni. Mikil gagnrýni hefur verið á dómstóla landsins í þá veru að þeir horfi í gegnum fingur sér í málum sem viðkoma heimilisofbeldi. Með fjölgun fjölmiðla á Íslandi og tilkomu netsins hefur það gerst að almenningur fylgist betur með dómsmálum og umræðan um dómsmál og refsingar er mun meiri og almennari en áður var. Þrýstihópar og almenningur hafa efnt til mótmæla þegar þeim hefur sýnst að dómarar hafi strokið afbrotamönnum blítt um kinn í stað þess að dæma þá til þyngri refsingar. Hingað til hefur hugtakið ofbeldi verið notað um alls konar tilvik ofbeldis, hvort sem um er að ræða átök milli ókunnugra í miðbænum, götuofbeldi eða heimilisofbeldi sem er allt annars eðlis og oft um ítrekaðar misþyrmingar að ræða sem jafnvel ná yfir langt tímabil eða æviskeið. Morð og alvarlegar líkamsárásir eru mjög oft framin af einhverjum nákomnum brotaþola. Í þessari ritgerð ætlar höfundur að varpa ljósi á ákvörðun refsinga og þá sérstaklega með hliðsjón af sifjatengslum geranda og brotaþola og hvort dómarar beiti refsilækkunum/-hækkunum vegna sifjatengsla gerenda við fórnarlömb sín eða hvort dómarar horfa fram hjá slíkum tengslum. Í ritgerðinni verður fjallað um manndráp og alvarlegar líkamsárásir

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigurður Jónas Gíslason 1967-
Advisor dc:description.advisor
  • Kolbrún Sævarsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/6024

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigurður Jónas Gíslason 1967-. Ákvörðun refsinga, sérstaklega með hliðsjón af sifjatengslum geranda og brotaþola. 2010. https://hdl.handle.net/1946/6024