Back to search

Bifröst University

Kostnaður vegna hrygggiktar árið 2009

Abstract

dc:description.abstract

Bakgrunnur: Hryggikt er gigtarsjúkdómur sem hefur í för með sér líkamlega fötlun og skert lífsgæði sjúklinga ef engin meðferð er veitt. Í kringum síðustu aldamót komu á markað ný lyf, svokölluð líftæknilyf sem hafa gjörbreytt lífi hryggiktarsjúklinga. Gallinn við þessi lyf er sá að þau eru mjög dýr en kosturinn á móti er að þau hafa í för með sér aukin lífsgæði sjúklinga sem og að í einhverjum tilfellum geta þeir stundað atvinnu sem væri annars erfitt ef ekki ómögulegt. Markmiðið með þessu verkefni er að leggja mat á kostnaðinn vegna hryggiktar hjá sjúklingum sem fengu Remicade líftæknilyfjameðferð árið 2009 á dagdeild gigtar á Landspítala Háskólasjúkrahúsi í Fossvogi. Jafnframt er það markmið með verkefninu að kanna hvernig kostnaðurinn skiptist í beinan og óbeinan kostnað. Aðferðir: Lagðir voru fyrir spurningalistar hjá hryggiktarsjúklingum sem fá Remicade á Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Í spurningalistunum voru sjúklingar spurðir út í beinan og annan beinan kostnað vegna sjúkdómsins, jafnframt var spurt út í atvinnuþátttöku, nám og fleiri viðlíka þætti. Virkni og líkamleg fötlun vegna sjúkdómsins var metin með BASDAI og BASFI spurningalistunum og nytjar voru metnar með EQ-5d spurningalistanum. Lýsandi tölfræði var síðan notuð til þess að meta kostnað og nytjar fyrir sjúklingahópinn ásamt því að leggja mat á hvernig kostnaðurinn þróaðist með tilliti til virkni sjúkdómsins. Niðurstaða: Miðgildi aldurs hjá sjúklingunum var 44,5 ár og miðgildi líftíma sjúkdóms 8,5 ár. 73,8% sjúklinganna voru karlmenn og 72,9% höfðu atvinnu. Miðgildis BASDAI var 29,9 og miðgildis BASFI var 16,2. Árlegur meðalkostnaður var áætlaður tæpar 4.389.361 kr. (staðalfrávik 1.574.749). Beinn kostnaður endurspeglaði 78,1% af heildarkostnaðinum en óbeini kostnaðurinn 21,9%. Kostnaðurinn vegna sjúkdómsins hækkar töluvert samfara aukningu á virkni- og líkamlegri fötlun vegna sjúkdómsins. Vænt kostnaðaraukning við aukningu á BASFI um 1 stig var rúmlega 77.000 kr. Til samanburðar þá var kostnaðaraukningin við aukningu á BASFI um eitt stig rúmlega 90.000. Miðgildi nytja EQ-5d var 0,86 (staðalfrávik 0,23). Að jafnaði lækkuðu nytjarnar um 0,049 fyrir einnar einingar aukningu á BASFI

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birgir Óli Sigmundsson 1980-
Advisor dc:description.advisor
  • Kári Joensen 1979-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/6066

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birgir Óli Sigmundsson 1980-. Kostnaður vegna hrygggiktar árið 2009. 2010. https://hdl.handle.net/1946/6066