Back to search

Bifröst University

Fjármagnstekjuskattur á Íslandi : skila skattahækkanir á fjármagnstekjur meiri tekjum í ríkissjóð? : Ber að greiða fjármagnstekjuskatt af kaup- og söluréttarsamningum?

Abstract

dc:description.abstract

Fjármagnstekjuskattur er eitt af nýyrðunum sem hafa orðið til á Íslandi á síðustu tveimur áratugum í þeim mikla vexti sem átti sér stað á þeim tíma, þá sér í lagi vexti atvinnu-, viðskipta- og fjármálalífs. Fyrir tilkomu fjármagnstekjuskatts í upphafi árs 1997 voru fjármagnstekjur skattlagðar sem almennar tekjur með ýmsum ívilnunum en vaxtatekjur voru skattfrjálsar. Fjármagnstekjuskattur er að vissu leyti samtvinnaður þeim uppgangi sem átti sér stað á íslenskum fjármálamarkaði frá miðjum tíunda áratug síðustu aldar allt fram til dagsins í dag. Fjármagnstekjuskattur er sá skattstofn sem hvað mest hefur vaxið á undanförnum áratug og hafa tekjur ríkissjóðs sem og hlutdeild hans í heildarskattstofni ríkissjóðs margfaldast á stuttum tíma. Í ritgerð þessari, sem verður á fræðilegum nótum, mun höfundar varpa nánara ljósi á þetta fyrirbæri sem fjármagnstekjuskattur er. Farið verður yfir aðdraganda tilkomu hans, saga hans rakin, samanburður gerður á honum og almennum launaskatti og álitamál er tengjast honum tekin fyrir. Höfundur leitast við að skrifa ritgerðina á mannamáli þannig að hún geti líka gagnast og aukið skilning þeirra sem enga sérfræðiþekkingu hafa á viðfangsefninu eða viðskiptalífinu almennt. Lítið er til af rituðum fræðibókum um skattamál á Íslandi og fækkar enn frekar í þeim hópi þegar að kemur að sértækum skatti eins og fjármagnstekjuskatti. Heimildavinna fór því að mestu leyti fram á veraldarvefnum þar sem mikið er til af efni er snýr að viðfangsefnum ritgerðarinnar, bæði frá opinberum aðilum sem og upplýsingar sem birtar hafa verið í almennum fjölmiðlum. Einnig er stuðst við tölvupóst og í einu tilfelli við munnlega heimild.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórður Guðjónsson 1973-
Advisor dc:description.advisor
  • Einar Sigurjón Valdimarsson 1960-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/6111

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórður Guðjónsson 1973-. Fjármagnstekjuskattur á Íslandi : skila skattahækkanir á fjármagnstekjur meiri tekjum í ríkissjóð? : Ber að greiða fjármagnstekjuskatt af kaup- og söluréttarsamningum?. 2010. https://hdl.handle.net/1946/6111