Back to search

Bifröst University

Eiga Íslendingar að skrifa nýja stjórnarskrá?

Abstract

dc:description.abstract

Nú þegar Alþingi hefur ákveðið að efna til stjórnlagaþings þarf að taka ákvörðun um hvort byggja eigi á Lýðveldisstjórnarskránni og gera umfangsmiklar breytingar á henni eða skrifa Íslandi nýja stjórnarskrá frá grunni. Niðurstöður þessarar ritgerðar eru þær að meiri líkur séu á að góð sátt náist um nýja stjórnarskrá sem endurspegli þau gildi sem þjóðin getur sameinast um. Sú stjórnarskrá myndi einnig hæfa betur þeirri stjórnskipan sem Íslendingar ákveða. Það styrkir þessa niðurstöðu að við lýðveldisstofnun stóð til að setja nýja stjórnarskrá á næstu árum. Mörgum finnst því tími til kominn að þjóðin eignist sína eigin stjórnarskrá. Einnig er það niðurstaða þessarar ritgerðar að til að það takist og að sú stjórnarskrá njóti lögmætis verði að fara fram víðtæk umræða og fræðsla um stjórnarskrána í samfélaginu. Þannig geti þjóðin nálgast það verkefni með raunhæfum væntingum. Í nútímasamfélagi er eðlilegur ágreiningur líklega besta sátt sem búast má við. Óraunhæft er að gera ráð fyrir að ný eða notuð stjórnarskrá geti orðið samfélagssáttmáli sem hver og einn Íslendingur geti samþykkt. Betra væri að gera ráð fyrir því að fólk hafi ólík gildi og ólíkar skoðaninir og fagna því að "úrtölumennirnir" taki þátt í umræðunni ólíkt því sem tíðkaðist fyrir efnahagshrunið 2008.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sævar Ari Finnbogason 1970-
Advisor dc:description.advisor
  • Jón Ólafsson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/6409

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sævar Ari Finnbogason 1970-. Eiga Íslendingar að skrifa nýja stjórnarskrá?. 2010. https://hdl.handle.net/1946/6409