Abstract
dc:description.abstractÞegar hræðsla kemur fram í garð ferðaþjónustunnar eins og gerðist við eldgosin á Suðurlandi árið 2010 fer höfundur að velta fyrir sér hvort þessir atburðir hafi áhrif á staðfæringu landsins og hvort eldgos breyti einhverju um það. Ef sú viðvarandi hætta á náttúruhamförum sem fyrir finnst á Íslandi er ekki hluti af þeim hugmyndum sem staðfæring Íslands sem áfangastaðar ferðamanna hefur gefið erlendum aðilum er þá verið að nálgast hana rétt. Gerð var eigindleg rannsókn í formi viðtala með þátttöku fagaðila ferðaþjónustunnar og erlendra ferðamanna. Niðurstöðurnar voru bornar saman við erlendar rannsóknir Stanley Plog´s og bent á leiðir til úrbóta. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að þann hóp ferðamanna sem sækir Ísland heim megi flokka til hægri hliðar persónuleikagerða kúrfu Plog´s. Sækist hann aðallega eftir óspilltum og áhrifamiklum áfangastöðum sem njóta má í fámenni og upplifa á einstakan hátt. Þetta fólk er ævintýrasækið og finnst eldgos gera landið áhugaverðara en ella. Staðfæring Íslands ætti samkvæmt þessu að byggjast á þáttum á borð við þá sem nefndir voru hér að framan þ.e.a.s. að Ísland sé lítt spilltur áfangastaður sem bjóði upp á fámenni og einstakar upplifanir. Setja þarf markmið t.d. hvað varðar þolmörk á fjölda ferðamanna til landsins með tilliti til þeirra hópa ferðamanna sem miða á markaðssetningu landsins við til framtíðar en kenningar Plog´s geta nýst við það.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Elísabet Ásta Magnúsdóttir 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Svansson 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 3Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/6646