Back to search

Bifröst University

Með hvaða aðferðum bregðast stjórnendur LSH við niðurskurði?

Abstract

dc:description.abstract

Í þessari ritgerð, sem er að hluta til fræðileg, skoðar höfundur áhrif niðurskurðar á Landspítala - háskólasjúkrahús. Höfundur byrjar á því að skoða fræðilegar aðferðir stjórnunar og stjórnunaraðferða, skilgreina stefnumótun og stefnumiðað árangursmat, bæði almennt og í heilbrigðiskerfi og skoða ákveðna þætti og aðferðir innan hugtakafræðanna og áhrif þeirra. Þá rýnir höfundur í upplýsingar og gögn frá Landspítalanum um þróun starfseminnar og stjórnunar spítalans og skipurita frá árinu 2006 til dagsins í dag. Þessar upplýsingar skoðar höfundur síðan í tengslum við fjárhagslega þróun spítalans og styðst þá við ársskýrslur og reikninga frá árunum 2006 til ársins 2010. Höfundur notaði eigindlegar rannsóknaraðferðir og lagði hálfopnar viðtalsspurningar fyrir tvo háttsetta stjórnendur spítalans; annars vegar forstjóra spítalans og hins vegar framkvæmdastjóra fjárreiðna og upplýsinga. Einnig nýtti höfundur sér rafrænan gagnabanka Landspítalans sem og aðrar rafrænar heimildir til upplýsingaöflunar. Höfundur studdist ennfremur við fræðibækur, tímarit og greinar. Ritgerðin fjallar um aðferðafræði stjórnunar og hvernig er hægt að nýta hana til þess að bregðast við breytingum í umhverfinu, eins og niðurskurði af völdum efnahagskreppu. Stefnumótun er veigamikið tæki í stjórnun fyrirtækja og stofnana sem og önnur mælitæki og aðferðir innan stjórnunarfræðanna. Höfundur fer yfir þær aðferðir sem tengjast efni rannsóknarinnar, en það eru aðferðir stefnumiðaðrar stjórnunar, stefnumiðaðs árangursmats, siðfræði við stjórnun heilbrigðisþjónustu og nýtingu skipurita til þess að efla og skilgreina stjórnunar- og boðleiðir sem stuðla að dreifistýringu og hvernig þessar aðferðir eru nýttar og með hvaða árangri við stjórnun í niðurskurði Landspítalans.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Hólmfríður Halldórsdóttir 1982-
Advisor dc:description.advisor
  • Hanna Katrín Friðriksson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/6650

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Hólmfríður Halldórsdóttir 1982-. Með hvaða aðferðum bregðast stjórnendur LSH við niðurskurði?. 2010. https://hdl.handle.net/1946/6650