Abstract
dc:description.abstractLöggjöf um þvingaða samsköttun veitir skattyfirvöldum heimild til að líta svo á að tekjur erlends aðila séu í reynd skatttekjur íslensks aðila og þær skattlagðar með öðrum tekjum hans. Vorið 2009 var slík löggjöf sett á Íslandi að norskri fyrirmynd. Ritgerðin fjallar um íslensku löggjöfina og hvernig hún muni reynast í framkvæmd. Leiddar eru í ljós þær takmarkanir sem slíkri löggjöf eru settar og gerð grein fyrir helstu annmörkum þeirrar íslensku ásamt tillögum um úrbætur. Meginefni ritgerðarinnar skiptist í þrjá hluta. Í þeim fyrsta er fjallað um löggjöf um þvingaða samsköttun og sú íslenska borin saman við þá norsku, í öðrum hluta er samspil tvísköttunarsamninga og slíkrar löggjafar kannað og í þriðja og síðasta hlutanum er samspil Evrópuréttar við löggjöf um þvingaða samsköttun skoðað. Samanburðurinn í fyrsta hluta ritgerðarinnar sýnir að norska löggjöfin er ívið betri en sú íslenska. Annar hluti leiðir í ljós að það er mismunandi hvernig dómstólar einstakra ríkja túlka samræmanleika slíkrar löggjafar og tvísköttunarsamninga en sú íslenska kveður á um að tvísköttunarsamningar komi ekki í veg fyrir beitingu löggjafarinnar ef tekjur félags í lágskattaríki eru að megninu til óvirkar og stafa ekki frá raunverulegri starfsemi. Í þriðja hluta er samspil löggjafarinnar við Evrópurétt kannað með hliðsjón af dómaframkvæmd Evrópudómstólsins. Þar kemur í ljós að takmörkunum á fjórfrelsinu eru settar þröngar skorður og íslenska löggjöfin um þvingaða samsköttun stenst sennilega ekki þær kröfur sem Evrópuréttur gerir til slíkrar löggjafar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sylvía Ólafsdóttir 1974-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/6682