Bifröst University
Standast þær greinar laga um ráðherraábyrgð sem fyrrverandi forsætisráðherra, Geir Hilmari Haarde, er gert að sök að hafa brotið gegn, kröfur um skýrleika refsiheimilda? : Standast aðrir þættir ákærunnar og aðdraganda hennar meginreglur refsiréttar?
Abstract
dc:description.abstractUndanfarin misseri hafa miklar umræður og deilur átt sér stað á Alþingi jafnt sem íslensku samfélagi, um ráðherraábyrgð og réttmæti ákæru á hendur fyrrverandi ráðherrum. Verður í þessari ritgerð fjallað um ákæruna á hendur fyrrverandi forsætisráðherra, Geir Hilmari Haarde og aðdraganda hennar. Megininntak ritgerðarinnar er á þær greinar sem fyrrverandi forsætisráðherra er gert að sök að hafa brotið gegn með tilliti til skýrleika refsiheimilda. Einnig er þó vikið að öðrum þáttum tengdum ákærunni, er kunna að vekja efasemdir um réttmæti hennar. Skoðuð lög um ráðherraábyrgð og lög um landsdóm, skrif íslenskra fræðimanna um skýrleika refsiheimilda og íslenskir dómar er fjalla um skýrleika refsiheimilda. Þar sem aldrei hefur reynt á íslensk lög um ráðherraábyrgð né lög um landsdóm, er horft til þess hvernig slíku er háttað í Danmörku og Noregi, ásamt því að skoðaðir eru nokkrir dómar Mannréttindadómstóls Evrópu, er víkja að skýrleika refsiheimilda. Niðurstöður ritgerðarinnar hníga að því að þær greinar sem fyrrverandi forsætisráðherra er gefið að sök að hafa brotið gegn, standist kröfur sem gerðar eru til skýrleika refsiheimilda. Þá standist skipan dómara í landsdómi 1. mgr. 70. gr. stjskr. Kosning Alþingis um að ákæra einungis fyrrverandi forsætisráðherra, hafi óneitanlega pólitískan blæ yfir sér og spurning hvort það brjóti gegn jafnræðisreglu 65. gr. stjskr. Með Hrd. 491/2007 er þó ljóst að þó sumir ráðherrar hafi komist upp með lögbrot muni það ekki leiða til sýknu fyrrverandi forsætisráðherra. Mesti vafinn leikur á hvort 22. gr. ldl., er kveður á um að rannsókn ákveðinna atriða geti farið fram fyrir héraðsdómi, uppfylli 145. gr. sml. um að rannsókn sé að fullu lokið áður en ákvörðun er tekinn um ákæru og 111. gr. sml. um milliliðalausa sönnunarfærslu. Við mat á því munu dómstólar væntanlega líta til sérstöðu ráðherraábyrgðar.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Huginn Rafn Arnarson 1987-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 5Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/7566