Back to search

Bifröst University

Viðhorf bankastarfsmanna til árangurstengdra launa

Abstract

dc:description.abstract

Neikvæð umfjöllun í fjölmiðlum, í mars 2010, um upptöku bónuskerfa að nýju í stóru bönkunum þremur, Landsbankanum, Íslandsbanka og Arion banka, og reynsla höfundar af árangurstengdum launum, leiddi til þess að höfundur fór að velta fyrir sér hvort viðhorf bankastarfsmanna til árangurstengdra launa hafi breyst, frá því fyrir bankahrun. Ekki eingöngu viðhorf þeirra sem hafa reynslu af slíkum launum heldur líka þeirra sem hafa fylgst með þróun slíkra launa, hvort sem þær upplýsingar hafi fengist úr fjölmiðlum,rannsóknarskýrslu Alþingis eða upplifun þeirra af árangurstengdum launum annarra starfsmanna eða stjórnenda á þeirra vinnustað. Höfundur framkvæmdi megindlega rannsókn í formi spurningakönnunar með þátttöku bankastarfsmanna, sem hafa fengið greidd árangurstengd laun og sem hafa ekki fengið slík laun greidd. Spurningakönnunin var lögð fyrir starfsmenn Landsbankans. Niðurstöður rannsóknarinnar styðja við fræðilega hluta ritgerðarinnar. Viðhorf bankastarfsmanna eru ólík eftir því hvort starfsmennirnir hafa fengið greidd árangurstengd laun eða ekki. Viðhorf þeirra sem hafa fengið slík laun greidd eru jákvæðari gagnvart árangurstengdum launum en þeirra sem hafa ekki fengið slík laun greidd. Einnig má sjá mun á viðhorfum kynjanna en karlmenn eru jákvæðari en konur gagnvart árangurstengdum launum.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Aníta Guðlaugsdóttir 1987-
Advisor dc:description.advisor
  • Hanna Katrín Friðriksson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/7606

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Aníta Guðlaugsdóttir 1987-. Viðhorf bankastarfsmanna til árangurstengdra launa. 2011. https://hdl.handle.net/1946/7606