Back to search

Bifröst University

Verslun með matvæli á Internetinu : er markaður á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu?

Abstract

dc:description.abstract

Almenn netverslun hefur verið í mikilli þróun á síðasta áratug og virðast nú engin takmörk vera fyrir því sem hægt er að versla á Internetinu. Á undanförnum árum hefur verslun með matvæli á Internetinu náð gríðarlegum vinsældum erlendis, sér í lagi á Bretlandi og í Bandaríkjunum. Norðurlandaþjóðirnar hafa einnig fetað inn á þennan markað en netverslanir þar í landi hafa átt erfiðara með að ná sömu vinsældum og þekkist annars staðar. Á Íslandi er nú engin starfandi matvörunetverslun en Hagkaup setti slíka verslun á laggirnar upp úr síðustu aldamótum sem lifði stutt vegna of hás rekstrarkostnaðar sem skilaði sér í of háu vöruverði. Í verkefninu er rannsakað hvort markaður sé á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu. Við vinnslu verkefnisins var litið er til erlendra kannana og skýrslna sem fjalla um viðfangsefnið. Að gagnasöfnun lokinni var aflað frumheimilda með markaðsrannsókn sem lögð var fyrir á Internetinu í formi spurningalista. Markmið rannsóknarinnar er að kanna hvort íslenskir neytendur séu tilbúnir til að breyta kauphegðun sinni þegar kemur að því að versla í matinn og hvort tækifæri sé fyrir fyrirtæki að ráðast inn á þennan markað.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Birna Sif Kristínardóttir 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Emil Bjarni Karlsson 1953-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/7608

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Birna Sif Kristínardóttir 1986-. Verslun með matvæli á Internetinu : er markaður á Íslandi fyrir verslun með matvæli á Internetinu?. 2011. https://hdl.handle.net/1946/7608