Abstract
dc:description.abstractVinnsla á ferskum fiski til útflutnings hófst í einhverjum mæli 1981 hjá Sölumiðstöð Hraðfrystihúsanna. Aftur á móti varð það ekki fyrr en um árið 1990 – 1994 sem þetta varð orðið að alvöru útflutningsgrein, sem mörg fiskvinnslufyrirtæki fóru að taka þátt í. Skýrsluhöfundur fór og tók viðtöl við fiskframleiðendur sem störfuðu á ferskfiskmarkaðnum til þess að fá innsæi á mikilvægi þessarar greinar í íslenskum sjávarútvegi. Markmiðið var að bera ferskan fisk sem fluttur er með flugi eða vöruflutningaskipum saman við aðrar vinnsluaðferðir. Skoðaðar voru tölur úr sjávarútveginum til þess að glöggva sig betur á hvort að ferskfiskvinnsla skilaði virðisauka fyrir framleiðendur. Í viðtölunum var spurt um þær hindranir sem framleiðendur þurfa að takast á við í sínum rekstri. Niðurstöður rannsóknarinnar gefa til kynna að kaupendur á ferskfiskmarkaði gegni veigamiklu hlutverki í myndun hráefnisverðs á ýsu og þorski ásamt öðrum tegundum og hve mikil sérhæfing er orðin í vinnslu á bolfiski. Sjónarmið framleiðenda varðandi aukinn hráefnisskort á mörkuðum var skoðaður en tölur bentu ekki til að fiskmagn á almennum fiskmarkaði hafi dregist saman. En halda má því fram að sú óvissa sem stjórnvöld hafa skapað í sjávarútveginum í dag, hafi orðið til þess að kvótaeigendur séu að halda að sér höndum og leigi ekki út frá sér kvóta, sem veldur því að ferskfiskframleiðendur eigi erfiðara með að afla sér hráefnis.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Guðjón Þór Guðmundsson 1977-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Einar Svansson 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/7610