Abstract
dc:description.abstractMarkmið þessarar ritgerðar er að leiða í ljós hver staða og framkvæmd EES-samningsins er í íslensku réttarkerfi annars vegar í ljósi þeirra stjórnskipulegu fyrirvara er gerðir voru við lögfestingu hans og hins vegar með hliðsjón af þeim fræðilegu viðhorfum er hér eru við lýði um tengsl þjóðaréttar og landsréttar og birtast í svonefndri tvíeðliskenningu. Í reynd eru áhrif EES-samningsins á íslenskan landsrétt mun víðtækari en ráðið verður af hinni formlegu stöðu þjóðréttarreglna sem kenningin um tvíeðli þjóðaréttar og landsréttar gengur út frá. Staðfestir slíkt þá þróun sem gætt hefur undanfarin ár, meðal annars í tengslum við skýringu og beitingu Mannréttindasáttmála Evrópu þá einkum fyrir lögfestingu hans, á þá leið að tvíeðliskenningin sé á undanhaldi í íslenskum rétti. Að sama skapi má segja að þær forsendur sem lagt var upp með við lögfestingu samningsins á þá leið að framsal ríkisvalds til alþjóðlegra stofnana væri að vissu marki heimilt enda væri það afmarkað, takmarkað og ekki verulega íþyngjandi séu ekki lýsandi fyrir framkvæmdina í reynd. Í ljósi þess er vandkvæðum háð að sjá að þau áhrif sem EES-samningurinn hefur haft á löggjöf, lagaframkvæmd og valdheimildir innlendra dómstóla rúmist innan stjórnskipulegra heimilda og í raun má segja að það sé ekki nokkrum vafa undirorpið að tímabært sé að setja ákvæði í Stjórnarskrá lýðveldisins Íslands nr. 33/1944 sem heimilar framsal ríkisvalds að vissu marki. Slíkt ákvæði væri óneitanlega til þess fallið að eyða þeirri réttaróvissu er skapast hefur í tengslum við skýringu og beitingu EES-samningsins í framkvæmd.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Helga Björg Jónsdóttir 1985-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/7906