Back to search

Bifröst University

Samfélagsleg ábyrgð og fyrirtækjamenning

Abstract

dc:description.abstract

Aukin krafa er um samfélagslega ábyrga stefnu fyrirtækja og skipt getur sköpum fyrir samkeppnishæfi þeirra að vera fær um að bregðast við slíku. Meðvitað starfsfólk hefur mikið að segja í þessu samhengi og því er eðlilegt að líta til þeirra áhrifa sem stefna í samfélagslegri ábyrgð getur haft á fyrirtækjamenningu. Einnig er litið til þess hvort stefna í samfélagslegri ábyrgð nái betur til starfsfólks ef hún hefur sterka birtingarmynd í táknkerfi fyrirtækja. Í því skyni að rannsaka tengsl samfélagslegrar ábyrgðar og fyrirtækjamenningar er litið til fræðilegra kenninga sem og rannsókna. Einnig er gerð megindleg rannsókn á því hvort tengsl séu á milli upplifunar starfsfólks á birtingarmynd stefnu og þess hvort starfsfólk sé meðvitað um málefni sem snúa að samfélagslegri ábyrgð. Niðurstöður leiddu í ljós að stefna í samfélagslegri ábyrgð hefur áhrif á fyrirtækjamenningu í gegnum sameiginleg gildi og viðmið starfsfólks. Slík stefna getur aukið hollustu en jafnframt valdið mótspyrnu. Loks hefur stefna í samfélagslegri ábyrgð áhrif á þau siðferðislegu álitamál sem snúa að markmiðasetningu fyrirtækja. Einnig leiddu niðurstöður í ljós að tengsl gætu verið á milli birtingarmyndar stefnu í táknkerfi fyrirtækja og almennrar meðvitundar starfsfólks um málaflokkinn. Einnig benda niðurstöður til þess að nálgun hvað varðar samfélagslega ábyrgð þurfi ekki að hafa úrslitaáhrif á viðhorf starfsfólks. Rannsóknaraðferðum sem beitt var sýna ekki fram á orsakasamhengi en niðurstöður gefa þó tilefni til frekari rannsókna.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Þórhildur Ósk Halldórsdóttir 1974-
Advisor dc:description.advisor
  • Hanna Katrín Friðriksson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/9756

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Þórhildur Ósk Halldórsdóttir 1974-. Samfélagsleg ábyrgð og fyrirtækjamenning. 2011. https://hdl.handle.net/1946/9756