Back to search

Bifröst University

Sjálfbærni í orkuiðnaði : göfugt markmið eða gluggaskreyting?

Abstract

dc:description.abstract

Landsvirkjun hefur undanfarin ár unnið með stefnumótun um sjálfbæra þróun. Stefnumörkun þessari var ýtt úr vör í framhaldi af leiðtogafundi sem haldinn var í Jóhannesarborg á vegum Sameinuðu þjóðanna árið 2002. Umræðuefni fundarins var sjálfbær þróun og áherslur til framtíðar. Markmið þessarar rannsóknar er að kanna hvernig Landsvirkjun nálgast sjálfbærni og sjá af hverju sjálfbær þróun er mikilvæg fyrir Landsvirkjun. Í gegnum ferlið verður leitast við að sjá hversu mikil alvara býr að baki þeirri vinnu sem lagt hefur verið í hvað varðar sjálfbæra þróun hjá Landsvirkjun. Ritgerðin er að miklu leyti byggð á grunnheimildum sem aflað var með hálfstöðluðum einstaklingsviðtölum. Eðli viðfangsefnisins kallaði á þesskonar rannsóknaraðferðir frekar en aðrar. Rannsóknarspurningarnar eru þannig úr garði gerðar að ekki er hægt að svara þeim með hlutlægum sönnunum og þá er ljóst að viðfangsefnið er umdeilt og því ákjósanlegt að niðurstaða sé fengin út frá mismunandi viðhorfum og skoðunum þeirra aðila sem málið varðar. Í niðurstöðum rannsóknarinnar má sjá hvaða ferlum og aðferðum Landsvirkjun beitir þegar kemur að því að nálgast hugmyndafræði sjálfbærrar þróunar. Ber þar helst að nefna vottað umhverfisstjórnunarkerfi, innleiðingu alþjóðlegs sjálfbærnistaðals og sjálfbærniverkefni sem unnin hafa verið á Norður- og Austurlandi. Þá gefa niðurstöður rannsóknarinnar til kynna að það starf sem unnið er í nafni sjálfbærni hjá Landsvirkjun sé byggt á faglegum grunni. Af niðurstöðum rannsóknarinnar að dæma má leiða að því líkur að sjálfbær þróun sé ekki mikilvægari fyrir Landsvirkjun frekar en hvern annan, hugsunarháttur sjálfbærrar þróunar ætti að höfða til flestra. Rannsóknin leiddi í ljós að með innleiðingu sjálfbærrar þróunar hafi margt breyst hjá Landsvirkjun. Teikn eru á lofti um að stóriðjustefnan sé að líða undir lok og nýr hugsunarháttur að taka við sem skilað gæti aukinni arðsemi fyrir eigendur Landsvirkjunar, íslensku þjóðina.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Gissur Kolbeinsson 1986-
Advisor dc:description.advisor
  • Njörður Sigurjónsson 1974-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 5

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/9767

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Gissur Kolbeinsson 1986-. Sjálfbærni í orkuiðnaði : göfugt markmið eða gluggaskreyting?. 2011. https://hdl.handle.net/1946/9767