Back to search

Bifröst University

Milliverðlagning : heimildir og takmarkanir með hliðsjón af alþjóðlegum skattarétti

Abstract

dc:description.abstract

Með milliverðlagningu er átt við það verð sem tengdir aðilar koma sér saman um að gildi í viðskiptum þeirra á milli. Verðlagning milli tengdra aðila getur verið ákveðin með öðrum hætti en þeim sem almennt tíðkast í viðskiptum ótengdra aðila. Löggjöf um milliverðlagningu veitir skattyfirvöldum heimild til að endurákvarða það verð sem skuli gilda við ákvörðun skattstofna. Í meginmáli ritgerðarinnar er fyrst fjallað almennt um milliverðlagningu og vandamál tengd henni. Því næst er farið yfir íslenskar milliverðsreglur, skilyrði fyrir beitingu þeirra og hvernig dóma- og úrskurðaframkvæmd hefur verið. Að síðustu er fjallað um þá vinnu sem hefur farið fram á vettvangi OECD til að draga úr vandamálum tengdum milliverðlagningu og hvaða áhrif Evrópuréttur hefur á slíka löggjöf. Af íslenskri framkvæmd má sjá að skattyfirvöld virðast skorta nánari leiðbeiningar um hvernig skuli beita ákvæðum um milliverðlagningu. Þar gæti komið til greina að lögfesta leiðbeiningar OECD eins og mörg önnur ríki hafa gert. Þegar litið er til framkvæmdar á vettvangi Evrópubandalagsins sést að takmörkunum á fjórfrelsinu eru settar mjög þröngar skorður og rík krafa gerð um samvinnu ríkja og upplýsingaskipti þeirra á milli

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sylvía Ólafsdóttir 1974-
Advisor dc:description.advisor
  • Ingibjörg Þorsteinsdóttir 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 4

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/9836

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sylvía Ólafsdóttir 1974-. Milliverðlagning : heimildir og takmarkanir með hliðsjón af alþjóðlegum skattarétti. 2011. https://hdl.handle.net/1946/9836