Back to search

Reykjavík University

Leigumarkaðurinn á Íslandi: Möguleg úrræði við leiguvandanum sem ríkir á markaði.

Abstract

dc:description.abstract

Markmið þessara rannsóknar er að fjalla um og skilgreina þann vanda sem er til staðar á íslenskum leigumarkaði í dag í þeim tilgangi að kanna möguleg úrræði í samanburði við aðgerðir stjórnvalda í nágrannalöndum okkar. Töluverð umfjöllun hefur verið í samfélaginu undanfarin ár um ástand og stöðu leigjenda á íslenskum leigumarkaði. Eins og staðan er í dag er uppsafnaður skortur á íbúðarhúsnæði sem veldur ójöfnuði á markaði sem gerir það að verkum að leigjendur búa við mikið óöryggi og íþyngjandi húsnæðiskostnað. Aukning ferðamanna og vinsældir skammtímaleigumiðlana ýtir enn frekar undir þann vanda sem er til staðar ásamt mikilli fjölgun á aðfluttu vinnuafli. Rannsóknin var tvíþætt. Notast var annars vegar við hálfstöðluð viðtöl til að þróa nálgun á því vandamáli sem lagt var upp með að leysa og ná dýpri skilningi á viðfangsefninu. Hins vegar notuðust rannsakendur við fyrirliggjandi gögn til að skoða möguleg úrræði við þeim vanda sem ríkir hér að landi. Erlendar fyrirmyndir sýna að önnur lönd hafa glímt við skort á húsnæði, óöryggi meðal leigjenda og íþyngjandi húsnæðiskostnað. Tiltekin lönd brugðust við með ýmsum hætti og nægir hér að nefna aukningu leiguíbúða á viðráðanlegu verði og að reglubinda leigumarkað með mismunandi hætti. Viðtöl við sérfræðinga leiða í ljós að nauðsynlegt er að byggja minna og hagkvæmara leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Steinn Þorkelsson 1994-
  • Súsanna Edith Guðlaugsdóttir 1994-
Advisor dc:description.advisor
  • Róbert Farestveit 1985-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn í Reykjavík

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/30833

Chain of custody

source
Harvested from
Reykjavík University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-18
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Steinn Þorkelsson 1994-; Súsanna Edith Guðlaugsdóttir 1994-. Leigumarkaðurinn á Íslandi: Möguleg úrræði við leiguvandanum sem ríkir á markaði.. 2018. https://hdl.handle.net/1946/30833