Abstract
dc:description.abstractÍ þessari ritgerð er leitast við að kanna hvort viðskiptalegur uppruni raforku á Íslandi skipti máli. Umhverfismál fá sífellt meiri athygli og umfjöllun. Ákall ungs fólks um öflugri aðgerðir í loftslagsmálum hefur verið áberandi á meðan á skrifum þessum hefur staðið. Með tilkomu skráningar uppruna raforku í formi upprunaábyrgða hafa íslensku raforkufyrirtækin hafið útflutning upprunaábyrgða í miklu mæli, sem hefur breytt uppruna raforku á Íslandi úr því að vera einungis frá endurnýjanlegum uppruna í að vera að meirihluta frá kjarnorku og jarðefnaeldsneyti. Farið er yfir undanfara og tilgang tilskipunar Evrópusambandsins um skráningu uppruna raforkuframleiðslu og viðskipti með upprunaábyrgðir. Sem hluti af Evrópska efnahagssvæðinu hefur tilskipunin verið staðfest á Íslandi. Farið er yfir raforkumarkaðinn á Íslandi og leitast við að kanna hvort og þá hver áhrif tilskipunin um upprunaábyrgð raforku hefur haft á þann markað. Það er niðurstaða höfundar að upprunaábyrgðir raforku skipti ekki miklu máli á Íslandi í dag, en líklegt sé að það geti breyst áður en langt um líður.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Fríður Birna Stefánsdóttir 1960-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 8Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/35035