Back to search

Bifröst University

Fjárhagsleg áhrif Menntaskóla Borgarfjarðar

Abstract

dc:description.abstract

Menntaskóli Borgarfjarðar hóf starfsemi sína árið 2007 í Borgarnesi. Skólinn er staðsettur í húsinu Hjálmakletti en húsið er jafnframt menningarhús Borgarbyggðar. Húsið var byggt á árunum 2006-2008. Sveitarfélagið eignaðist húsið árið 2010 og er það fært í ársreikning Borgarbyggðar sem B hluta fyrirtæki. Sveitarfélagið greiðir framlag til reksturs hússins vegna menningarhúss og millifærir einnig innri leigu frá stofnunum sveitarfélagsins fyrir notkun þess. Menntaskólinn greiðir ákveðna upphæð í húsaleigu til Borgarbyggðar en húsið er líka leigt út til almennra nota. Í þessari rannsókn var leitast við að draga fram, með kostnaðar- og ábata greiningu hvaða fjárhagslegu áhrif Menntaskóli Borgarfjarðar hefur haft á Borgarbyggð og fjárhag heimila í Borgarbyggð árin 2007-2021. Notaðar voru upplýsingar úr ársreikningum Borgarbyggðar og Menntaskóla Borgarfjarðar. Gerð var kostnaðar- og ábatagreining og því til viðbótar voru tekin viðtöl við fimm einstaklinga sem þekkja vel rekstur Menntaskólans og sveitarfélagsins. Helstu niðurstöður sýna að Menntaskólinn er rekinn með hagnaði og sömuleiðis húsið Hjálmaklettur. Kostnaðar- og ábatagreining yfir 15 ára tímabil gefur til kynna heildar kostnað umfram ábata fyrir sveitarfélagið að upphæð 866 milljónir. Ábati vegna nemenda í heimabyggð vegna skólans er á móti áætlaður 1.197 milljónir. Niðurstöðutölur gefa til kynna að mikilvægt sé að auka starfsemi og rekstrartekjur Hjálmakletts og fjölgun nemenda yrði mikill styrkur fyrir skólann. Þau viðtöl sem tekin voru benda til þess að skólinn styrki samfélagið, menntunarstig hafi hækkað og að tækifæri séu mörg til framtíðar.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Helga Halldórsdóttir 1962-
Advisor dc:description.advisor
  • Árni Sverrir Hafsteinsson 1980-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/43499

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Helga Halldórsdóttir 1962-. Fjárhagsleg áhrif Menntaskóla Borgarfjarðar. 2023. https://hdl.handle.net/1946/43499