Back to search

Bifröst University

Breytingastjórnun og viðhorf til SAP upplýsingakerfa hjá Símanum

Abstract

dc:description.abstract

Meginviðfangsefni ritgerðarinnar er breytingastjórnun og viðhorf til SAP upplýsingakerfa hjá Símanum. Þær miklu breytingar, sem gerðar voru hjá Símanum þegar SAP upplýsingakerfið var tekið í notkun, snertu flesta starfsmenn fyrirtækisins. Þörfin fyrir góðar, öruggar og áreiðanlegar lausnir var nauðsynleg til að leysa af hólmi marga eldri hugbúnaði sem voru ekki að standast kröfur nútímans og þörfnuðust endurnýjunar.Var álitið að fjárfesting í nýju kerfi væri forsenda þess að Síminn væri samkeppnishæfur og einnig var farið að huga að einkavæðingu fyrirtækisins og því var framtíð þess með góðum hugbúnaði mikilvæg. Fyrirtækið gerði kröfur um heildstæðan upplýsingahugbúnað sem gæti sameinað mörg af eldri kerfum í eitt. Það sem helst vakti áhuga höfundar var að rannsaka viðhorf starfsmanna til kerfisins í dag. Leitast var við að kanna að hversu miklu leyti kenningar breytingastjórnunar eigi við í þessari rannsókn. Sömuleiðis hvort þær geti gagnast stjórnendum við uppfærslu á SAP upplýsingakerfinu eða ef innleiða á nýtt kerfi í framtíðinni. Helstu niðurstöður sýna fram á að fyrirtækið getur nýtt sér í breytingum og uppfærslum á SAP, átta skref breytingastjórnunar Kotter. Einnig geta stjórnendur fyrirtækisins haft í huga kenningu Kurt Lewin um þriggja skrefa breytingaferli hans. Spurningakönnun sem send var á starfsfólk gefur góða mynd af því hverju var ábótavant varðandi uppfærslur í SAP og hvað stjórnendur gætu skoðað betur. Áhugavert var að skoða niðurstöður könnunarinnar því hún leiddi í ljós að viðhorf til SAP upplýsingakerfa væri mjög jákvætt, enginn svaraði því neikvætt.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Author dc:creator
  • Sigríður Sigþórsdóttir 1970-
Advisor dc:description.advisor
  • Hanna Katrín Friðriksson 1964-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 3

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/4499

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Sigríður Sigþórsdóttir 1970-. Breytingastjórnun og viðhorf til SAP upplýsingakerfa hjá Símanum. 2010. https://hdl.handle.net/1946/4499