Bifröst University
Erfið fæðingarreynsla : afleiðingar og möguleg meðferðarúrræði til bættrar þjónustu
Abstract
dc:description.abstractÍ þessu verkefni er leitast við að lýsa fæðingarreynslunni og hennar helstu áhrifaþáttum, ásamt því að gera grein fyrir jákvæðri og neikvæðri upplifun með áherslu á neikvæða fæðingarreynslu og alvarlegum afleiðingum hennar, nánar tiltekið áfallastreituröskun og fæðingarótta. Þessu til viðbótar er helstu meðferðarúrræðum lýst með tilliti til andlegra kvilla eftir barnsfæðingu í þeim tilgangi að varpa ljósi á hvað hægt er að gera til að draga úr eða koma í veg fyrir umrædd vandamál og um leið að stuðla að bættri þjónustu á sviði kvenlækninga og ljósmóðurfræða. Við heimildaleit var stuðst við leitarvefina Medline, Psychinfo, Scopus, Cinahl, Pubmed og Google scholar en rannsóknir varðandi viðfangsefnið eru margar talsins og er þær helst að finna á sviði sálarfræða, læknisfræða, hjúkrunar- og ljósmóðurfræða. Mikil þörf virðist vera á umfjöllun viðfangsefnisins og er áherslan sem neikvæð fæðingarreynsla fær í þessari ritgerð talin nauðsynlegt innlegg í þeim tilgangi að vekja athygli á alvarleika hennar og óæskilegum en jafnframt meðfærilegum afleiðingum. Þörfin á umfjöllun er ekki síður til staðar með tilliti til bættrar þjónustu og bættrar andlegrar heilsu nýbakaðra mæðra. Varðandi frekari rannsóknarvinnu virðist vera þörf á rannsóknum tengdum forvörnum og meðferð en ekki síður tengdum rekstri og stefnumótun þjónustunnar með tilliti til fæðingarreynslunnar. Niðurstaðan er sú að fæðingarreynslan hefur víðtæk áhrif á einstaklinginn, neikvæðar afleiðingar þarfnast frekari athygli, ásamt því að meðferðarúrræði séu gerð aðgengilegri í þeim tilgangi að bæta heilbrigðisþjónustuna með langtíma árangur í huga.
Author and committee
dc:creator, dc:contributor.*- Author dc:creator
-
- Sigrún Skúladóttir 1974-
- Advisor dc:description.advisor
-
- Hildur Sigurðardóttir 1958-
- Contributors dc:contributor
-
- Háskólinn á Bifröst
Subjects
dc:subject × 4Rights
- Language dc:language.iso
- is
Identifiers
dc:identifier.*- Handle dc:identifier.uri
- https://hdl.handle.net/1946/4585