Back to search

Bifröst University

Fjölmiðlar í megrun - Íslensk fjölmiðlaumfjöllun um sykursýkislyf og upplifun notenda á lyfinu

Abstract

dc:description.abstract

Fjölmiðlaumfjöllun um semaglutide og liraglutide-lyf hefur verið áberandi síðastliðna mánuði og ár. Í þessari rannsókn verður rannsakað hvernig fjölmiðlaumfjöllun á Íslandi er um sykursýkislyf. Rannsóknin var tvíþætt þar sem rannsökuð var upplifun notenda á þessari umfjöllun fjölmiðla sem og lyfjunum sjálfum. Íslenskir fréttamiðlar voru innihaldsgreindir til að komast að framsetningu þeirra á umfjöllun um lyfin. Fréttamiðlarnir RÚV, DV, Vísir og Morgunblaðið voru skoðaðir. Aðrir fréttamiðlar voru lítið skoðaðir. Upplifun notenda var rannsökuð á formi spurningakönnunar. Til að fá sem besta mynd úr þessum upplýsingum voru settar upp tvær rannsóknarspurningar. Sú fyrsta var: „Hvert er eðli íslenskrar fjölmiðlaumfjöllunar um notkun semaglutide og liraglutide-lyfja á borð við Ozempic og WeGovy við þyngdarstjórnun?“ Sú seinni var: Hvernig samræmast upplifanir notenda semaglutide og liraglutide-lyfja þeirri umræðu sem á sér stað í íslenskum fjölmiðlum? Úrvinnsla gagna sýndi að fréttaumfjöllun í íslenskum fjölmiðlum snýst að mestu um fólk og er sett fram á hlutlausan hátt. Þrátt fyrir þær niðurstöður er upplifun notenda önnur, þeir hafa almennt mjög góða reynslu af lyfjunum en telja fréttaumfjöllun neikvæða og oft ýta undir skömm. Lykilorð: Semaglutide, Liraglutide, Ozempic, Wegovy, Saxenda, Rybelsus, þyngdarstjórnun, þyngdarstjórnunarlyf, offita, ofþyngd, fjölmiðlar, o.fl.

Author and committee

dc:creator, dc:contributor.*
Authors dc:creator
  • Erla Katrín Kjartansdóttir 1993-
  • Elín Erna Stefánsdóttir 1993-
Advisor dc:description.advisor
  • Andrea Guðmundsdóttir 1990-
Contributors dc:contributor
  • Háskólinn á Bifröst

Subjects

dc:subject × 6

Rights

Language dc:language.iso
is

Identifiers

dc:identifier.*
Handle dc:identifier.uri
https://hdl.handle.net/1946/49201

Chain of custody

source
Harvested from
Bifröst University
Base URL
skemman.is/oai/request
Last updated
2026-11-26
Source record
OAI-PMH GetRecord
citation

Erla Katrín Kjartansdóttir 1993-; Elín Erna Stefánsdóttir 1993-. Fjölmiðlar í megrun - Íslensk fjölmiðlaumfjöllun um sykursýkislyf og upplifun notenda á lyfinu. 2025. https://hdl.handle.net/1946/49201